Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.01.1960, Page 12

Tímarit lögfræðinga - 01.01.1960, Page 12
J, nnann S; nœuarr, proj eiior : Um þinglýsingu og þinglýsingarfrumvarpið nýja Erindi haldið á sameiginlegum fundi Lögfræðingafélags íslands og Dómarafélags íslands 13. nóv. 1959. I. Fyrir röskri öld — eða nánar tiltekið 119 árum — kom út í Kaupmannahöfn rit. sem samið hafði Jón John- sen, þá assessor í hinum konunglega islenzka Landsyfir- rétti. Rit þetta hét Hugvekja um þinglýsingar, jarðakaup, veðsetningar og peningabrúkun á Islandi. Ritið er þrung- ið þeim mikla framfarahug, sem þá gætti svo mjög hjá ýmsum forvstumönnum íslendinga, og er gagntekið trú höfundar á landið og hjargræðisvegi þess. Eggjar höf. landsmenn lögeggjan á umbætur í jarðrækt og eflingu at- vinnuvega landsins að öðru ieyti. Höf. liafði verið dóm- ari í Danmörku um nokkurt árabil, er hann tók við dómaraembætti í Landsyfirdóminum árið 1836. Getur hann þess í ritinu, að það hafi vakið furðu sína, er hann kom hingað heim, hve þinglýsingar veðhréfa voru fátiðar, og kveikti það í honum til að rannsaka, hverju það gegndi. Athugun hans á þessu fvrirbrigði leiddi í ljós, að ávöxtun Islendinga á peningum var fáránleg og óarðvæn fvrir þjóðfélagið. Þeir varðveittu fé sitt í handraðanum, unz þeir höfðu önglað saman svo miklum fjárstofni, að nægði fvrir jarðarverði, og keyptu svo jörð, þegar því takmarki var náð. Jón yfirdómari taldi, að þessi húraskapur væri þjóðinni dýru verði keyptur, og þessir ávöxtunarhættir urðu að tali hans raktir að marki til þess, að þinglýsing- 10 Timnrit löfjfrœðinpa

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.