Tímarit lögfræðinga - 01.01.1960, Qupperneq 33
D. Þing-lýsing, er varðar fasteignir.
1. Efni og form skjala.
1 21. og 23. gr. frv. er rætt um skjöl, sem geyma skil-
orð. Segir í 21. gr. um afsöl, að þeim verði ekki þinglýst
sem eignarheimild, ef þau séu háð öðrum skilyrðum
um yfirfærslu eignarréttar en greiðslu kaupverðs innan
tiltekins frests. Ef afsal er t. d. háð samþykki 3Tfirvalda
um aðiljaskipti eða þriðja manns, svo sem forkaups-
réttarhafa, verður því ekki þinglýst sem eignarheimild.
Hins vegar getur það allt að einu verið þingh'Tsingartækt,
t. d. sem kvöð á eign. Er mjög mikilvægt að skapa hrein-
ar línur í þessu efni með því að áskilja að afsal sé af-
dráttarlaust. — Um önnur skjöl en afsöl segir almennt
svo í 23. gr. frv., að þau megi vera skilorðsbundin, en
efni þeirra verður þó að vera endanlega ákveðið. Sér-
ákvæði eru um tryggingarbréf.
í 22. gr. frv. eru nýmæli um vottfestingu skjala, sem
þinglýsa á, sbr. þó 7. gr. veðlaga. Um afsöl og veðbréf
er þar áskilið, að undirskrift sé staðfest af notario pu-
blico, héraðsdóms- eða hæstaréttarlögmanni eða fulltrúum
þeirra, löggiltum fasteignasala eða tveimur vitundarvott-
um. Taka ber skýlaust fram, að útgefandi hafi ritað nafn
sitt eða kannazt við undirskrift sina í viðurvist þess eða
þeirra, sem undirskrift staðfesta, svo og að viðkomandi
hafi verið fjárróða á greindum tíma. Ritun undir sam-
þykki samkv. 24. gr. frv. skal staðfesta með sama hætti.
Samkv. 33. gr. frv. eru sérstök gildisáhrif tengd við þing-
lýst skjöl, og er m. a. af þeim sökum mikilvægt að tryggja
það eftir föngum, að þau skjöl, sem afhent eru til þing-
lýsingar, séu gild. Ákvæðið tekur aðeins til afsala og
veðbréfa, en t. d. ekki til skjala um umferðarréttindi og
ekki lieldur til framsals á veðbréfi. Þau afsöl og veðbréf,
sem stafa frá opinberum aðiljum, eru undanþegin álcvæði
um staðfestingu. Ef áskilnaði þessa ákvæðis er ekki sinnt,
ber að vísa skiali frá þinglýsingu, sbr. 6. gr. 1. málsgr.
Tímarit lögfrœöinga
31