Tímarit lögfræðinga - 01.01.1960, Page 53
4. Fangelsi.
5. öryggisgæzlu.
Um fangelsamál eru lög nr. 29, 1. febrúar 1936, lög nr.
26, 7. marz 1928 (vinnuhæli ríkisins) og tilskipun 4. marz
1871, um byggingu hegningarhúss og fangelsa á Islandi
m. fl. Ríkið er eigandi hegningarhússins í Reykjavík og
vinnuhælisins á Litla-Hrauni. Samkvæmt lögum nr. 29,
1. febrúar 1936, skal byggingarkostnaður fangelsa greið-
ast að hálfu úr ríkissjóði, en að hálfu úr hlutaðeigandi bæj-
arsjóði eða sveitarsjóði. Mun þannig farið um stofnkostn-
að allra fangelsa á landinu að hegningarhúsinu í Reykja-
vík og vinnuhælinu á Litla-Hrauni undanskildum. Ríkið
kostar að öllu leyti rekstur vinnuhælisins á Litla-Hranni,
en annarra fangelsa að hálfu móti hlutaðeigandi bæjar-
arsjóði eða sveitarsjóði.
Verður nú rakið hvað til er í landinu af stofnunum, sem
gegna framanskráðum hlutverkum. Hef: ég aflað skriflegra
upplýsinga allra lögreglustjóra landsins um ástand fang-
elsamála í lögsagnarumdæmum þeirra og skoðað í sumar
flestöll fangahús landsins. Er eftirfarandi greinargerð
um fangahúsin byggð á þessu hvoru tveggja.
Núverandi fangelsi landsins.
1. R e y k j av ík
Þar eru tvö fangelsi: Hegningarhúsið á Skólavörðustíg
9 og lögreglustöðvarkj allarinn.
a. Hegningarhúsið
Hús þetta, sem er úr höggnum steini með gólfum og
loftum úr timbri, var byggt á árunum 1871—1874. Hefir
það, síðan það var tekið í notkun í ársbyrjun 1875, verið
aðalfangelsi landsins, að vísu við hlið vinnuhælisins á
Litla-Hrauni síðan það var stofnsett árið 1929.
Húsið er tvær hæðir og ris, án kjallará. Ris er ónothæft
nema sem geymsla. Á efri hæð er bæjarþingstofa Reykja-
Tímarit lögfrœöinga
51