Tímarit lögfræðinga - 01.01.1960, Blaðsíða 74
Nú starfa í vinnuhælinu 9 gæzlumenn auk forstjóra, en
annað starfslið er bryti, bifreiðarstjóri, tveir verkstjórar
og fjósamaður.
Eitt meginvandamál vinnuhælisins hefir verið það, að
þangað hafa verið færðir til refsivistar fangar af mjög
ólíku tagi. Þar hafa verið fangar á ýmsum aldri, ungir
piltar með rosknum, margdæmdum sakamönnum og stór-
glæpamönnum, geðveilir fangar og vanþroska. Þessi skort-
ur á sundurgreiningu fanganna er ásamt skorti vinnuskil-
yrða meginókostur vinnuhælisins. Oft hafa fangar á und-
anförnum árum strokið úr hælinu og gert uppsteit. Gekk
það svo langt 24.—25. marz 1956, að fangar yfirbuguðu
fangaverðina og höfðu húsið á sínu valdi næturstund. Urðu
við þetta tækifæri mikil spjöll á húsinu og varð af þeim
sökum m. a. að taka það til gagngerðrar viðgerðar, og féll
starfræksla hælisins þá niður mánuðum saman. Vegna
vöntunar á rammbyggðu einangrunarfangelsi, þar sem
hafa mætti þá fanga, sem sekir gerast í vinnuhælinu um
uppivöðslu og ofstopa, hefir eigi verið unnt að koma þeim
burtu, heldur hafa þeir verið látnir í innilokun í hælinu
sjálfu og nú á síðustu missirum 1 hina nýju einangrunar-
klefa, sem áður var lýst. Veldur þetta óhæfilegum óróa inn-
an hælisins og eru allar líkur til þess, að fangar hafi mun
minni beyg af þessu en flutningi í einangrunarfangelsi.
Hefir reynslan oft sýnt, að einn fangi (hvað þá fleiri)
getur með ofstopa, óhlýðni og undirróðri stórspillt hugar-
fari og hegðun annarra fanga, bæði við vinnu og 1 hvíld-
artímum og jafnvel eyðilagt í bili þann anda, sem ríkja
verður í stofnuninni, ef hún á að geta gegnt hlutverki sínu.
Ef tekið er saman fangahúsrjTni á landinu samkvæmt
framangreindum upplýsingum, er sú skrá á þessa leið:
72
Timarit lögfrœöinga