Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.01.1965, Side 20

Tímarit lögfræðinga - 01.01.1965, Side 20
IV. Embættistími sýslumanna. 1 þeim skipunarbréfum sýslumanna, sem varðveist hafa, er yfirleitt ekki greint frá því til hvaða tíma sýslu- menn voru skipaðir. 1 sumum þessara skipunarbréfa segir að sýslumaður skuli Kongsins sýslu og umboði að fylgja til næsta öxarárþings og það lengur, sem eigi verður önn- ur lögleg skipan á gjörð.J) — Til undantekninga má telja skipunarbréf Ólafs biskups á Hólum, sem fékk sýsluveitingu (sem lén) til 10 ára,2) og skipunarbréf Torfa í Klofa, sem fékk sýsluveitingu til þriggja ára.3) Þó er getið lífsbréfa valdsmanna fyrir konungslénum. Segir t. d., að Herloff Daa hafi komið út árið 1607 með slík konungsbréf.4) Einnig eru til veitingabréf frá árunum 1607 og 1608, sem voru til lífstíðar5) og til eru sams konar bréf frá árinu 1628.6) Lífstíðar veitingabréf var útgefið af konungi 1697 fyrir Snæfellsnessýslu „og Stapans umboð“. 7) 1 þessu sambandi má geta þess, að talið er, að Þorvarður Þórarinsson bafi haft konungs- sýslu í Múlaþingi til dauðadags, eins og áður er getið. Stundum lauk embættistíma sýslumanna með brottvikn- ingu úr embætti. Sem dæmi má nefna dóm einn, sem út- nefndur var af umboðsmanni lögmanns, sem vék Runólfi Höskuldssyni frá sýslumannsstörfum árið 1505, sakir kirkjuráns og fleiri saka.8) Sýslumanni var vikið frá em- bætti um stundar sakir vegna hórdóms 1709.9) I skip- an hirðstjóra frá 1501, sem áður er getið, höfðu lög- menn vald til að setja þá sýslumenn af, sem ekki gerðu 1) Sjá í d. I. F. VI, 546. 2) í. F. V, 201. 3) í. F. VII. , 697. 4) A. f. IV, 35. 5) A. í. IV, 57 og 91. 6) A. í. V, 156— ■157. 7) A. í. IX, 24. 8) í. F. VII, , 752- -753. 9) A. í. IX, 524- -525. 14 Timarit lögfræðinga

x

Tímarit lögfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.