Tímarit lögfræðinga - 01.01.1965, Qupperneq 22
I. Störf, sem frábrugðir eru störfum sýslumanna
nú á tímurn.
Hér er aðallega um að ræða störf í sambandi við öxar-
árþingið.
1. Seta á Alþingi.
Sýslumenn voru skyldir til að mæta á Alþingi. 1 Jb.
I, 2 segir, að valdsmenn allir og sóknarmenn þeirra séu
skyldir að koma til lögþingis eða skilríkir umboðsmenn
þeirra. Ef þeir mættu ekki að forfallalausu, varðaði það
þriggja marka sekt. Um skyldu til að sækja Alþingi má
minna á réttarbót 1313.
Ostatollur til Viðeyjarklausturs var samþykktur fyrir
1280 af sýslumönnum og lögmönnum og lögréttumönn-
um á Alþingi.1 2) Á árinu 1480 er getið sýslumanna og lög-
réttumanna á Alþingi.3) 1 dómi, sem gekk á Alþingi árið
1511 er skírskotað til þess, sem sýslumenn og lögréttu-
menn samþykkja á Alþingi, sem lögum eiga að ráða.4) A
Alþingi, gekk dómur árið 1579, sem meðal annars segir,
að valdsmenn allir og sóknarmenn þeirra séu skyldir að
koma til þings að viðlagðri þriggja marka sekt,5) sbr. Jb.
J, 2. Af svari lögmanna á Alþingi árið 1637, við fyrirspurn
um það, hvort sýslumenn væru skyldir að sækja lögþing-
ið, má sjá, að svo hafi verið, sbr. orðin „— forsóma þing
að sækja“.6) I konungsbréfi frá 1650, sem birt var á Al-
þingi, segir m. a., að allir sýslumenn skuli, samkvæmt
lögum og venju koma til þings á réttum tíma, nema lög-
leg forföll banni. 7) Á Alþingi þetta sama ár befalaði of-
urstinn, að allir sýslumenn skvldu koma til Alþingis per-
sónulega, utan sérlegar nauðsynjar hindruðu og lagði við
1) í. F. II, 387.
2) í. F. II, 195.
3) í. F. VI, 283.
4) í. F. VIII, 356.
5) A. í. I, 384.
6) A. í. V, 510.
7) A. í. VI, 263.
16
Tímarit lögfræðinga