Tímarit lögfræðinga - 01.01.1965, Síða 50
manna nú á dögum, og störf hinna fornu goða á lýðveldis-
timanum. Kemur þá í Ijós, að ýmislegt er sameiginlegt
störfum beggja. Skyldan til þess að sækja öxarárþingið
var báðum sameiginleg. Goðar kvöddu menn til Alþingis-
reiðar og sýslumenn skipuðu nefndarmenn, sem skyldir
voru að koma til Alþingis. Goðarnir áttu sæti í Iögréttu
og nefndu með sér tvo menn hver til setu þar. Sumir telja
að goðarnir hafi samkvæmt Clfljótslögum ekki átt sæti
i lögréttu, heldur hafi goðarnir útnefnt menn í lögréttu.
Eins og áður segir áttu lögmenn og sýslumenn að nefna
menn til setu í lögréttu og sennilega voru sýslumenn
stundum meðal þeirra, sem sæti áttu þar. Störf goðanna á
leiðarþingum virðast hafa verið hin sömu og störf sýslu-
manna þar. Störfin á vorþingum voru í flestum greinum
hin sömu og störf sýslumanna á manntalsþingum. Loks
má geta þess, að goðar nefndu menn í dóma eins og sjrslu-
menn gerðu.
Það eru einkum þrjú atriði, sem aðgreina goðana frá
sýslumönnum.
I fyrsta lagi hevrði til starfa goðanna, að annast um
hin fornu hof. Sýslumenn munu ekki hafa haft hliðstæð
störf með höndum.
I öðru lagi voru goðorðin ekki staðbundin með sama
hætti og sýslurnar urðu síðar.
1 þriðja lagi giltu aðrar reglur um skipun sýslumanna
en goða.
Sambandið milli sýslumanna og goða er þó máske aug-
ljósast af ákvæði Gamla sáttmála um það, að sýslumenn
skjddu vera af ættum goðanna. Svo virðist, að með sanni
megi segja, að sýslumenn hafi verið arftakar goðanna.
Það má því til sanns vegar færa, að sýslumannsembættið
hafi verið ein elzta stofnunin í hinu íslenzka þjóðfélagi.
4-1
Tímaril lugfræðinga