Tímarit lögfræðinga - 01.01.1965, Qupperneq 13
að skipa sýslumenn. 1 Alþingisdómi frá 1540 er talað um
óveittar sýslur, sem skuli vera í vernd lögmanns þar til
löglegur hirðstjóri kemur, sem settur sé af konungi.x) 1
bréfi sínu til hirðstjóra 1545, segir biskup, að gott væri, að
hann flýtti sér ekki að veita sýslur. -) 1 konungsbréfi frá
1552 segir, að hirðstjóri hafi fullt vald til að skipa aðra
góða sýslumenn.1 2 3) Árið 1633 íelur konungur lénsmanni
að skipa sýslumann í Vestmannaeyjum.4) 1 fornbréfa-
safninu eru nokkur skipunarbréf sýslumanna, útgefin af
hirðstjórum (1482, 1485, 1490, 1525, 1539 o. fl.).5 6)
1 skipan hirðstjóra frá 1501 segir m. a. svo, að lögmenn
hafi vald yfir þeim sýslumönnum, sem ekki gera lög og
rétt, eða deyja kunna, og setja þá af og skikka aðra góða
menn í staðinn.G) Til eru skipunarbréf sýslumanna, sem
lögmenn gáfu út frá árunum 1509 og 1521.7) 1 þessu sam-
handi kemur til athugunar áður nefndur Alþingisdómur
frá 1540, sem mælir svo fyrir, að óveittar sýslur skuli
vera í vernd lögmanns þar til löglegur hirðstjóri kemur.
Að líkindum hefur vald lögmanna til þess að skipa sýslu-
menn verið takmarkað við fjarveru hirðstjóra eða önnur
forföll hans.
Stundum liöfðu biskupar veitingavaldið. ögmundi bisk-
upi í Skálholti var t. d. fengið vald til að veita sýslur í
sínu biskujjsdæmi. Samkvæmt því skipaði hann sýslu-
mann i Rangárvallasýslu árið 1534 8 9) og aftur árið 1536. ° )
Sennilega hafði Jón biskup Arason á Hólum einnig vald
til að skipa sýslumenn í sínu biskupsdæmi.10)
1) í. F. X, 534—536.
2) í. F. XI, 411.
3) í. F. XII, 362, sbr. og Lovs. f. Isl. I, 171.
4) Lovs. f. Isl. I, 217.
5) í. F. VI., 447, 545, 717, IX, 266, X, 449.
6) í. F. IX, 46, sbr. VII, 734 og X, 465.
7) í. F. VIII, 273, 296, 831.
8) í. F. IX, 707, sbr. 736.
9) í. F. X, 74 og 340.
10) í. F. IX, 736.
Tímarit lögfræðinga
7