Ægir

Árgangur

Ægir - 01.09.1994, Síða 37

Ægir - 01.09.1994, Síða 37
Snefilefnadeildin lítur einnig eftir aöskotaefnum sjálfrar náttúrunnar. Þar er átt viö efni af náttúrulegum toga sem geta veriö hættuleg en ýmsar tegundir þörunga sem geta framleitt eitur sem safnast í skelfisk. „Allar þær tegundir sem geta framleitt eitur finnast viö ísland þó afar sjaldan hafi stafaö hætta af þeim. Kemur þaö m.a. til af því hve lítiö íslendingar hafa nýtt skelfisk. Þó hefur þessa aðeins orðið vart í kræklingi og dæmi eru um þörungaeitur í hörpudiski sem stöðvaði farm af íslenskum hörpudiski í Danmörku. Var eitrið aö finna í hrogna- og sviljasekkjum hörpudisksins. Þess vegna höfum viö tekið upp kerfisbundið eftirlit meö slíkrum efnum og tengist það eftirliti á kúfiskmiðum vegna væntanlegra veiða." Guðjón Atli telur að framtíðarverkefni snefilefnadeildar verði í auknum mæli eftirlit með hvers konar mengun í ís- lenskri náttúru. Auknar kröfur kaupenda, aukin meðvitund almennings og aukin sókn í áður lítt nýttar tegundir á grunnslóð knýja á um þetta. Guðjón Atli telur að fjármögnun starfseminnar sé orðin meö þeim hætti að vafasamt verði að teljast. „Við erum það háðir tekjum frá ýmsum sölusamtökum og þeim sem við vinnum fyrir að það er á mörkunum, að mínu mati, aö við getum talist óháð opinber stofnun eins og slíkt er venjulega skilgreint." Hinar ýmsu deildir Rf. hafa vökult auga meö íslensku lífríki og afurðum sem þaðan koma. VIÐ SENDUM RANNSÓKNASTOFNUN FISKIÐNAÐARINS 17 Ly í TILEFNI AF 60 ÁRA STARFSAFMÆLI RANNSÓKNASTOFNUN FISKIÐNAÐARINS varó sjálfstæð stofnun með lögum frá árinu 1965, en hafði áður verið starfrækt sem rannsóknastofa Fiskifélags íslands frá árinu 1934. 91 27969 FISKIFÉLAG ÍSLANDS Höfn Ingólfsstraeti I Pósthólf 820 121 Reykjavík Sími 91 10500 Bréfsími ÆGIR SEPTEMBER 1994 37

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.