Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.04.2000, Page 29

Tímarit lögfræðinga - 01.04.2000, Page 29
Því hefur verið haldið fram gegn þessari niðurstöðu að hentugra sé að greiðsluskylda ábyrgðarmanns verði virk strax við töku bús aðalskuldara til gjaldþrotaskipta án tillits til þess hvort fullnusta fáist við skiptin. Með því verði einföld ábyrgð raunhæfari trygging fyrir efndum kröfu og það geti þegar á heildina er litið verið frekar í samræmi við hagsmuni þeirra sem gangast í ábyrgð þar sem ella megi vænta þess að kröfuhafi geri áskilnað um sjálfskuldar- ábyrgð. Einnig geti gjaldþrotaskipti á búi aðalskuldara dregist á langinn en ábyrgðarmaður geti fyrirfram ekki reiknað með slíku hagræði sem ástæðulaust sé að tryggja honum. A hinn bóginn verði kröfuhafi að bera áhættuna af þverr- andi greiðslugetu ábyrgðarmanns meðan greiðsluskylda hans verður ekki virk. Sú staðreynd að oft sé efnahagsleg samstaða með ábyrgðarmanni og aðalskuld- ara leiði til þess að ríkir hagsmunir séu fyrir kröfuhafa að geta gengið að ábyrgðarmanni þegar við upphaf gjaldþrotaskipta. Þá er vísað til þess að almennt sé reynslan sú að lánardrottnar fái ekki teljandi fullnustu við gjald- þrotaskipti.39 Þessar röksemdir virðast sannfærandi en ráða þó sennilega ekki úrslitum. Ef þetta tímamark verður lagt til grundvallar væri unnt að ganga að ábyrgðarmanni í kjölfar úrskurðar um gjaldþrotaskipti á búi aðalskuldara jafnvel þótt gera megi ráð fyrir umtalsverðri úthlutun við skiptin. Sú niðurstaða væri í andstöðu við þá grundvallarreglu að ábyrgðarmanni verður ekki gert að efna þann hluta kröfu sem fenginn verður með tiltækum ráðum úr hendi aðalskuldara. 3.3.3.4 Nauðasamningur fyrir aðalskuldara Þegar aðalskuldari leitar nauðasamnings getur reynt á greiðsluskyldu sam- kvæmt einfaldri ábyrgð. Hér verður fyrst og fremst hugað að nauðasamningi án undanfarandi gjaldþrotaskipta samkvæmt 3. þætti laga nr. 21/1991 um gjald- þrotaskipti o.fl. Sömu atriði hljóta að koma til álita þegar leitað er nauða- samnings við gjaldþrotaskipti, sbr. XXI. kafla laganna, en þá kemur einnig til skoðunar það sem þegar hefur verið rætt um gjaldþrotaskipti á búi aðalskuldara. Eins og áður getur verður greiðsluskylda ábyrgðarmanns væntanlega ekki virk við það eitt að bú aðalskuldara sé tekið til gjaldþrotaskipta. Því síður kemur til álita að greiðsluskyldan verði virk við þá aðstöðu að aðalskuldari fái heimild til að leita nauðasamnings samkvæmt VII. kafla laga nr. 21/1991. Slík heimild ein og sér getur ekki talist fullnægjandi sönnun um ógjaldfærni aðalskuldara í þeim mæli að greiðsluskylda ábyrgðarmanns verði virk og því yrði kröfuhafi að afla frekari sönnunargagna í þessu skyni.40 Komist nauðasamningur á fyrir aðalskuldara með staðfestingu hans fyrir dómi verður að greina á milli þeirrar fullnustu sem samningurinn gerir ráð fyrir og þess hluta skuldarinnar sem fellur niður við samninginn. Hvað varðar það 39 Carsten Smith: Garantirett I, bls. 234-235, Garantirett III, bls. 257-259 og Kausjonsrett, bls. 92-93. 40 Carsten Smith: Garantirett I, bls. 253. 23

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.