Tímarit lögfræðinga - 01.04.2000, Blaðsíða 56
er sérlega gróft nema sérstakar ástæður mæli með, þ.m.t. lengd refsingar,
persónulegar aðstæður og framúrskarandi hegðun í refsivist. Hvergi er skil-
greint hvað telst meiriháttar fíkniefnabrot en Fangelsismálastofnun hefur farið
þá leið að fella a.m.k. þau brot sem heimfærð eru undir 173. gr. a. almennra
hegningarlaga undir þetta. Önnur afbrot sem fallið gætu undir 3. mgr. eru t.d.
brot á XXIV. kafla almennra hegningarlaga.
Samkvæmt 4. mgr. 5. gr. skal að jafnaði ekki veita fanga reynslulausn að
afplánuðum helmingi refsitíma ef hann hefur áður afplánað óskilorðs-
bundnar refsingar tvívegis eða oftar nema sömu undantekningarástæður og
ofangreindar eigi við eða mörg ár séu liðin frá síðustu afplánun. Miðað hefur
verið við að a.m.k. 5 ár líði milli afplánana. Það viðmið var valið með hliðsjón
af því hvenær ítrekunaráhrif falla niður samkvæmt 3. mgr. 70. gr. almennra
hegningarlaga. Það sem fjöldi afplánana getur gefið til kynna, óháð lengd
refsitíma eða fjölda dóma, er hvort afbrot eru hluti af lífsmunstri viðkomandi
eða hvort viðkomandi hefur „farið út af sporinu“ einu sinni eða tvisvar um
lengri eða skemmri tíma.
Samkvæmt 5. mgr. 5. gr. skal að jafnaði ekki veita fanga reynslulausn ef
hann telst vera síbrotamaður eða honum hefur ítrekað áður verið veittar
reynslulausnir og hann rofið skilyrði þeirra nema alveg sérstaklega standi
á. Fangelsismálastofnun hefur ekki skilgreint nákvæmlega hvað sé síbrota-
maður í þessum skilningi. Nokkuð er litið til fjölda afplánana en einnig fjölda
dóma og fjölda þeirra brota sem viðkomandi er dæmdur fyrir í hvert skipti. Þá
er litið til aldurs og hvort hlé hefur einhvem tíma orðið á brotastarfsemi. Þó má
slá því föstu ef viðkomandi hefur 6-7 sinnum afplánað áður að hann teljist
síbrotamaður.
4.3 Undantekningarástæður
Þær undantekningarástæður sem nefndar eru sérstaklega í reglugerð um
fullnustu refsidóma eru: lengd refsitíma, persónulegar aðstæður og framúrskar-
andi hegðun í refsivist. Þeirri málsástæðu er gjaman hreyft að þrátt fyrir alvar-
leika brots beri að veita reynslulausn vegna lengdar refsitíma. í slíkri túlkun
fælist endurskoðun stjómvalds á mati dómara en það er ekki tilgangur reynslu-
lausnar. Þetta atriði hefur verið túlkað svo að fyrst og fremst er litið til þess
hvort ástæða er til að ætla að lengd refsitíma hafi sérstaklega þungbær áhrif
fyrir viðkomandi fanga. Til grundvallar slíkri ályktun verða að liggja læknis-
fræðileg eða sálfræðileg gögn sem til eru komin á afplánunartímanum.
Persónulegar aðstæður er afar vítt hugtak. Allar félagslegar, heilsufarslegar
og jafnvel fjárhagslegar ástæður geta fallið hér undir. Dæmi em einnig um að
tekið sé tillit til heilsufars maka og barna. Þegar um brot er að ræða sem um er
getið í 3. mgr. greinarinnar em gerðar svipaðar kröfur til heilsufarslegra og
félagslegra ástæðna og gert er við náðun. Fjárhagslegar ástæður einar myndu þá
50