Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.04.2000, Blaðsíða 52

Tímarit lögfræðinga - 01.04.2000, Blaðsíða 52
lausn. Eins og vera ber sæta þó sumir dómþolar meira eftirliti en aðrir, allt eftir eðli brots, ferli í fangavist o.fl. 2. NOKKUR ORÐ UM ÞRÓUN REYNSLULAUSNAR HÉR Á LANDI OG NÝJUSTU BREYTINGAR Á LAGAÁKVÆÐUM UM REYNSLULAUSN Athygli vekur að flestar breytingar á lagaákvæðum er varða reynslulausn snerta tímamörk hennar. Reynslulausn var nýmæli í almennum hegningarlögun nr. 19/1940. Var þá heimilað að veita reynslulausn að afplánuðum 2/3 hlutum refsitíma. Frá 1976 hefur einnig verið heimilt að veita reynslulausn að afplán- uðum helmingi refsitíma. Náðun hafði þá verið beitt óhóflega að mati hegn- ingarlaganefndar til að vega upp ósveigjanleika reynslulausnarákvæðanna. Er enda eðlilegt að náðun sé aðeins beitt í sérstökum undantekningartilvikum. Fyrst í stað var aðeins heimilt að veita reynslulausn að 8 mánuðum afplán- uðum. Með lögum nr. 24/1976 var þessi tími styttur í 3 mánuði. Það lágmark átti þó ekki við reynslulausn að afplánuðum helmingi refsitíma. Næst var tíma- mörkum reynslulausnar breytt með lögum nr. 42/1985 og þau lækkuð í 2 mán- uði. Hins vegar var á sama tíma sett inn sérstakt ákvæði um að reynslulausn yrði ekki veitt ef eftirstöðvar refsitímans væru skemmri en 30 dagar. Tilgangur þess ákvæðis var fyrst og fremst að takmarka gildandi ákvæði 2. mgr. 40. gr. hegningarlaganna sem segir að reynslulausn megi veita ef sérstaklega standi á að liðnum helmingi refsitímans. Var jafnframt vísað til sambærilegra ákvæða á öðrum Norðurlöndum. Loks sagði að „óeðlilegt“ þætti að veita reynslulausn af styttri dómum en 2ja mánaða refsivist. Með nýlegum lögum, nr. 24/1999, voru þessi tímamörk afnumin. I greinargerð með lögunum er vísað til þess að með lögum nr. 82/1998 var varðhaldsrefsing afnumin. Ekki verður nú dæmd skemmri refsivist en 30 dagar. Segir réttilega að eftir þá breytingu sé ekki jafn- ríkt tilefni og áður fyrir því skilyrði 3. mgr. 40. gr. að eftirstöðvar refsitíma megi ekki vera skemmri en 30 dagar. Þá er á það bent að ákvæðið mismuni föngum eftir tímalengd refsingar. Heimilt hafi verið að veita reynslulausn af tveggja mánaða dómi eftir 30 daga afplánun en hins vegar enga reynslulausn af 45 daga fangelsisdómi. Breytingin leiðir af sér að heimilt er að veita reynslulausn eftir 15 daga afplánun. Rétt þykir að víkja jafnframt að 2. mgr. 42. gr. alm. hgl. sem var einnig breytt með lögum nr. 24/1999. Áður var gert ráð fyrir því að dómsmálaráðherra eða annað stjómvald gæti ákveðið að breyta skilyrðum reynslulausnar, lengja reynslutíma og/eða tilsjónartíma eða að aðili tæki út refsingu sem eftir stendur ef dómþoli fremdi ótvírætt brot á almennum hegningarlögum á skilorðstíman- um. I kjölfar álits umboðsmanns Alþingis í máli nr. 1189/1994 hafði Fangels- ismálastofnun ákveðið að beita ekki þessari heimild en lagði til að gerð yrði lagabreyting. I áliti umboðsmanns kom fram að það samrýmdist ekki 2. mgr. 6. gr. Mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. 1. gr. laga nr. 62/1994, að stjómvald tæki ákvörðun um frelsissviptingu með þeim rökstuðningi að dómþoli hefði 46
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Tímarit lögfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.