Tímarit lögfræðinga - 01.04.2000, Page 34
Tegund aðalábyrgðar skiptir einnig máli fyrir greiðsluskyldu bakábyrgðar-
manns. Ef aðalábyrgð er einföld verður greiðsluskylda ábyrgðarmanns ekki
virk fyrr en kröfuhafi sannar að engar efndir verði fengnar úr hendi aðalskuld-
ara vegna ógjaldfæmi hans. Eins og áður er vikið að getur þessi sönnun verið
tímafrek en hún er hins vegar óþörf ef aðalábyrgðin er sjálfskuldarábyrgð. I
kjölfar þess að aðalábyrgðin verði virk og hefur verið vanefnd ræðst síðan
greiðsluskylda bakábyrgðarmanns af því hvort ábyrgð hans er sjálfskuldar-
ábyrgð, einföld ábyrgð eða tjónsábyrgð. Aðalábyrgð og bakábyrgð þurfa ekki
að vera sömu tegundar og því er unnt að gangast í einfalda bakábyrgð fyrir
sjálfskuldarábyrgð á hendur aðalábyrgðarmanni og öfugt.
Þegar ábyrgðarmaður samkvæmt bakábyrgð hefur staðið kröfuhafa skil á
skuldbindingu sinni eignast hann endurkröfu á hendur aðalábyrgðarmanni í
samræmi við almennar reglur og öðlast rétt kröfuhafa á hendur honum. Einnig
eignast bakábyrgðarmaður rétt kröfuhafa gegn aðalskuldara að sama marki og
aðalábyrgðarmaður hefði öðlast þann rétt. Enn fremur fær bakábyrgðarmaður
tryggingarréttindi sem aðalábyrgðarmaður nýtur og endurkröfu sem hann getur
öðlast á hendur öðrum ábyrgðarmanni.52
3.6 Gagnábyrgð
Gagnábyrgð (d. kontrakaution) felur í sér skuldbindingu ábyrgðarmanns
gagnvart öðrum ábyrgðarmanni til tryggingar á því sem sá síðamefndi þarf að
standa kröfuhafa skil á vegna skuldbindingar sinnar. Ábyrgðarmaður er því ekki
skuldbundinn gagnvart kröfuhafa heldur þeim ábyrgðarmanni sem loforðinu er
beint að og verður hann hér eftir nefndur aðalábyrgðarmaður með sama hætti
og þegar rætt var um bakábyrgð. Þótt gagnábyrgð feli ekki í sér skuldbindingu
gagnvart kröfuhafa er ekkert sem girðir fyrir að gagnábyrgðarmaður hafi sam-
hliða gengist undir ábyrgð fyrir efndum kröfunnar gagnvart kröfuhafa.
Um gagnábyrgð eiga við sömu reglur og almennt gilda um kröfuábyrgð að
því gættu að loforðið er bindandi gagnvart aðalábyrgðarmanni. Á gagnábyrgð
getur ekki reynt fyrr en greiðsluskylda aðalábyrgðarmanns er orðin virk. Hve-
nær gagnábyrgðin verður síðan virk ræðst af tegund þeirrar ábyrgðar. Þegar
ekki er á annan veg samið er gagnábyrgðin einföld og í þeim tilvikum verður
aðalábyrgðarmaður að sanna að engar efndir verði fengnar úr hendi aðalskuld-
ara til að geta gengið að gagnábyrgðarmanni. Ef gagnábyrgðin er aftur á móti
sjálfskuldarábyrgð verður greiðsluskyldan virk samhliða greiðsluskyldu aðal-
ábyrgðarmanns.
Gagnábyrgð felur í sér tryggingu fyrir aðalábyrgðarmann vegna þess sem
hann þarf að standa kröfuhafa skil á í samræmi við skuldbindingu sína. Þannig
er gagnábyrgðin almennt bundin því skilyrði að stofnast hafi gild skuldbinding
á hendur aðalábyrgðarmanni.
52 Hans Viggo Godsk Pedersen: Kaution, bls. 35-36; Hans Verner Hojrup: Kaution, bls. 13-15;
H. Krag Jespersen: Kaution, bls. 66; Henry Ussing: Kaution, bls. 374-377.
28