Tímarit lögfræðinga - 01.04.2000, Side 41
greiðslu þess hluta kröfunnar sem er tryggður með ábyrgð.63 Við gjaldþrota-
skipti á búi aðalskuldara getur ábyrgðarmaður fengið úthlutun úr búinu upp í
endurkröfu sem hann öðlast með því að standa kröfuhafa skil á skuldbindingu
sinni. Þessi réttur ábyrgðarmanns stendur ekki að baki rétti kröfuhafa til út-
hlutunar úr búinu á sama veg og á við um hámarksábyrgð, svo sem áður er
rakið.
Það veltur á túlkun yfirlýsingar um kröfuábyrgð hvort hún verður talin há-
marksábyrgð eða hlutaábyrgð. Almennt verður litið á skuldbindingu ábyrgð-
armanns sem hámarksábyrgð ef gert er ráð fyrir víðtækari skuldbindingu
aðalskuldara og ábyrgðin er takmörkuð með því að tilgreina að hún standi fyrir
„allt að“, „ekki hærri en“ eða „með“ tiltekinni fjárhæð. Ef tiltekinn hluti kröf-
unnar er hins vegar ótvírætt afmarkaður sem andlag ábyrgðar verður litið á hana
sem hlutaábyrgð. I dæmaskyni um ábyrgð af því tagi má nefna hlaupareikning
aðalskuldara hjá kröfuhafa með yfirdrætti að fjárhæð 50.000 krónur. Við hækk-
un á yfirdrætti upp í 100.000 krónur kann að vera gerður áskilnaður um trygg-
ingu og hún kynni að vera veitt með kröfuábyrgð sem bundin væri við þessa
ráðstöfun þannig að ábyrgðin stæði einvörðungu til tryggingar á yfirdrætti aðal-
skuldara sem væri á bilinu 50.000 til 100.000 krónur. Einnig verður skuld-
binding ábyrgðarmanns væntanlega talin hlutaábyrgð ef hún er veitt fyrir skuld
í heild sinni án þess að gert sé ráð fyrir frekari lánveitingu. Ef fyrrgreind
hlaupareikningsviðskipti eru höfð til hliðsjónar teldist skuldbinding ábyrgðar-
manns hlutaábyrgð fyrir upphaflegum yfirdrætti og tæki því til þess sem stæði
á bilinu 0 til 50.000 krónur. A hinn bóginn stæði ábyrgðin ekki til tryggingar á
þeim hluta kröfunnar, sem svaraði til hækkunar á yfirdrætti og væri á bilinu
50.000 til 100.000 krónur.
Verði ekki ráðið af yfirlýsingu um kröfuábyrgð hvort ábyrgðarmaður hafi
takmarkað skuldbindingu sína sem hámarksábyrgð eða hlutaábyrgð hefur verið
talið að áskilnaður hans verði túlkaður sem loforð um hámarksábyrgð.64 Þetta
hefur þó verið vefengt með vísan til meðskýringarreglunnar en um efni hennar
er nánar rætt í kafla 2.3.65
Þegar kröfuábyrgð er takmörkuð við ákveðið hlutfall aðalkröfu svarar
ábyrgðin til þess sem nemur því hlutfalli af fjárhæð kröfunnar á hverjum tíma.
Þannig hefur greiðsla að hluta frá aðalskuldara áhrif gagnvart ábyrgðarmanni
og tekur skuldbinding hans upp frá því til sama hlutfalls af eftirstöðvum kröf-
unnar. Á því leikur hins vegar vafi hvemig farið verði með endurkröfu ábyrgð-
armanns á hendur þrotabúi aðalskuldara þegar skuldbinding hans er takmörkuð
63 Til dæmis má nefna kröfu að fjárhæð 100.000 krónur með ábyrgð sem bundin er við hluta
kröfunnar frá bilinu 50.000 krónur til 100.000 krónur. Ef aðalskuldari greiðir inn á kröfuna yrði að
færa það til lækkunar á hærri hluta hennar.
64 Hans Viggo Godsk Pedersen: Kaution, bls. 32-34; Hans Verner Hðjrup: Kaution, bls. 32-34;
H. Krag Jespersen: Kaution, bls. 29-30; Henry Ussing: Kaution, bls. 63-65; Carsten Smith:
Garantirett III, bls. 220-222.
65 Lennart Lynge Andersen og Erik Werlauff: Kreditretten, bls. 271.
35