Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.05.2001, Síða 14

Tímarit lögfræðinga - 01.05.2001, Síða 14
tryggja rétt allra til almennrar menntunar og fræðslu við sitt hæfi og í 3. mgr. er sérstakt ákvæði um að bömum skuli tryggð í lögum sú vernd og umönnun sem velferð þeirra krefst. Héðan í frá verður sjónum sérstaklega beint að 1. mgr. 76. gr., en á það ákvæði reyndi öðrum fremur í fyrrgreindum dómi Hæstaréttar í máli öryrkjabandalagsins frá 19. desember 2000. Uppruna 1. mgr. 76. gr. má rekja aftur til 52. gr. stjómarskrárinnar um hin sérstaklegu málefni íslands frá 5. janúar 1874 sem var svohljóðandi: Sá, sem getur ekki sjeð fyrir sjer og sínum, og sje hann ekki skyldu-ómagi annars manns, skal eiga rjett á að fá styrk úr almennum sjóði, en þá skal hann háður vera skyldum þeim, er lögin áskilja. Eins og önnur mannréttindaákvæði stjómarskrárinnar frá 1874 er þessi regla tekin úr grundvallarlögum Dana frá 1849.7 Réttur manna til framfærslustyrks frá ríkinu var þó almennt ekki talinn til sjálfsagðra stjómarski'árvemdaðra þegn- réttinda í Evrópuríkjum á þessum tíma og var til dæmis ekki meðal þeirra rétt- inda sem talin voru í frönsku réttindayfirlýsingunni frá 1789. Ákvæði þetta stóð að mestu óbreytt allt fram til þeirra breytinga, sem gerðar vom á mannréttinda- ákvæðum stjómarskrárinnar með stjskl. 97/1995, en síðast fyrir setningu þeirra var það í 70. gr. stjómarskrárinnar, svohljóðandi: Sá skal eiga rétt á styrk úr almennum sjóði, sem eigi fær séð fyrir sér og sínum, og sé eigi öðrum skylt að framfæra hann, en þá skal hann vera skyldum þeim háður, sem lög áskilja. Við könnun á dómum af sviði stjómskipunarréttar fyrir breytingar, sem gerð- ar vom með stjskl. 97/1995, kemur í ljós að ekkert dæmi virðist um að vísað hafi verið til eldri 70. gr. stjórnarskrárinnar í dómum Hæstaréttar undanfama áratugi, þrátt fyrir blómlega dómaframkvæmd um nánast öll önnur mannrétt- indaákvæði hennar.8 Það sama gildir um eldri 71. gr. stjómarskrárinnar sem fjallaði um rétt bama til uppfræðingar og framfæris af almannafé hefðu foreldr- ar ekki efni á að fræða þau sjálf eða væru börnin munaðarlaus eða öreigar. Þetta skýrist af því, sem áður voru talin sjálfsögð sannindi, að þessi réttindi væru ekki lagaleg og yrði ekki framfylgt fyrir tilstilli dómstóla. Þessi skoðun birtist afdráttarlaust í riti Olafs Jóhannessonar um stjómskipun Islands þar sem segir m.a.: 7 Ákvæði sambærilegt 1. mgr. 76. gr. stjórnarskárinnar er nú í 2. mgr. 75. gr. dönsku grundvallar- laganna. 8 Gunnar G. Schram: Dómar úr stjómskipunarrétti. I ritinu birtast ágrip flestra þeirra dóma Hæstaréttar sem varða stjórnarskrá fslands til 1991 og jafnframt er þar getið dóma Landsyfirréttar frá 1877-1920. Ekkert dæmi er þar um tilvísun til 70. gr. um rétt til styrks úr almennum sjóði. 82
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Tímarit lögfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.