Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.05.2001, Side 52

Tímarit lögfræðinga - 01.05.2001, Side 52
svo sem reglur sem mæla fyrir um viðurlög, fjárhæðir og fresti, eru óráðnar að þessu leyti. Samkvæmt framangreindu geta valdheimildir stjómvalda verið óráðnar með tilliti til þess hvort taka eigi ákvörðun og hvers efnis ákvörðun á að vera. Þannig getur regla mælt fyrir um lítið annað en að stjórnvald skuli grípa til viðeigandi ráðstafana ef nægar ástæður eru til. Þegar valdheimildir stjórnvalda eru reistar á réttarreglum sem eru óráðnar má segja að stjómvöld eigi mat eða frjálst mat. Mörkin milli matskenndra réttarreglna og annarra reglna eru samkvæmt þessu engan veginn skýr. Færa rná rök að því að allar réttarreglur séu óráðnar og mat- skenndar að einhverju leyti þótt sumar séu augljóslega mun óráðnari og þar með matskenndari en aðrar. Þegar rætt er um matskenndar reglur á sviði stjómsýslu- réttar er hins vegar yfirleitt átt við reglur sem leysa aðeins að litlu leyti úr því hvort stjómvald eigi að taka ákvörðun og/eða hvers efnis hún á að vera. Þess í stað vísa þær til einhverra viðmiða eða gilda, sem leiða í fæstum tilvikum til einnar ákveðinnar niðurstöðu, til dæmis til þess sem er gott, eðlilegt, viðeigandi, í samræmi við þarfir einhvers, tiltekin markmið, alvarlegt svo nokkur dæmi séu tekin. Eftir því sem regla hefur að geyma fleiri og nákvæmari viðmið er óræðni hennar minnkuð og svigrúm stjómvalds til mats takmarkað. Um mat stjómvalda samkvæmt óræðum reglum verður nánar fjallað hér á eftir í tengslum við mál- efnaleg sjónarmið. Aður verður vikið að því hvort ávallt sé æskilegt að haga valdheimildum stjómvalda á þá leið að þær gefi svigrúm til sem minnst mats. 4.3 Eiga valdheimildir stjórnvalda að vera fortakslausar? Ef réttarríkishugmyndin er lögð til grundvallar virðist augsýnt að haga beri lögum þannig að þau gefi stjórnvöldum sem minnst svigrúm til mats. Sam- kvæmt þessu ættu lögin að minnsta kosti að vera eins fortakslaus og framast er unnt, jafnvel þótt þau geti aldrei kveðið á um hvert einasta tilvik sem upp kann að konta með tæmandi hætti. 4.3.1 Kostir reglna og reglufestu Reglur hafa ýmsa kosti eins og þegar hefur verið fjallað um hér að framan í tengslum við almenna réttlætingu laganna. Sérstaklega var bent á þá samhæf- ingu í samfélaginu sem hlýst af reglum og tryggir eftir föngunt að hagsmunir manna rekist ekki á. Réttarríkið krefst þess einnig að samskipti manna innbyrð- is og samskipti þeirra við rfkisvaldið fari eftir reglum. Hægt er að færa frekari rök fyrir notkun reglna, einkum með hliðsjón af hlutverki stjómvalda: a. Einsleitni. Reglur taka til háttsemi manna á grundvelli efnislýsingar sinnar sem að jafnaði er almenn og ekki bundin við tiltekin atvik. Þessi eiginleiki reglna hefur þá þýðingu að ákvarðanir á grundvelli reglna verða sama efnis óháð því hvaða stjórnvaldshafi tekur ákvörð- un og hvaða einstaklingur á í hlut. Ef tryggja á einsleita stjómsýslu- framkvæmd geta reglur augljóslega þjónað því markmiði. 120

x

Tímarit lögfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.