Tímarit lögfræðinga - 01.05.2001, Blaðsíða 59
A VIÐ OG DREIF
FRÁ LÖGFRÆÐINGAFÉLAGI ÍSLANDS
AÐALFUNDUR LÖGFRÆÐINGAFÉLAGS ÍSLANDS 2000
Aðalfundur Lögfræðingafélags Islands var haldinn þriðjudaginn 31. október
árið 2000 á Grand Hótel Reykjavík.
Formaður félagsins, Ragnhildur Arnljótsdóttir, bauð gesti velkomna og að
því loknu tók Sigríður Ingvarsdóttir héraðsdómari við fundarstjórn. Gengið var
til áður auglýstrar dagskrár:
1. Ragnhildur Arnljótsdóttir, formaður félagsins, kynnti skýrslu stjórnar fyrir
nýliðið starfsár og opnaði að því loknu formlega heimasíðu félagsins.
2. Lagðir voru fram endurskoðaðir reikningar Lögfræðingafélags íslands frá 1.
október 1999 til 30. september 2000 og Tímarits lögfræðinga fyrir árið
1999. Helgi I. Jónsson, gjaldkeri félagsins, kynnti reikninga félagsins og
Steinunn Guðbjartsdóttir, framkvæmdastjóri Tímarits lögfræðinga, kynnti
reikninga þess. Fundarstjóri bar síðan reikningana upp til samþykktar ásamt
skýrslu stjómar og voru þeir einróma samþykktir.
3. Þá fór fram kosning stjómar og varastjórnar. Niðurstöður hennar voru þær
að Ragnhildur Arnljótsdóttir skrifstofustjóri var kjörin formaður félagsins
og Kristján Gunnar Valdimarsson forstöðumaður var kjörinn varaformaður.
Meðstjómendur voru kjörin Benedikt Bogason skrifstofustjóri, Helgi I.
Jónsson héraðsdómari, Jóhann Benediktsson sýslumaður, Páll A. Pálsson
hrl. og Steinunn Guðbjartsdóttir hdl. í varastjóm voru kjörnir Arnljótur
Björnsson hæstaréttardómari, Eiríkur Tómasson prófessor, Hallvarður Ein-
varðsson hrl., Hrafn Bragason hæstaréttardómari, Jón Steinar Gunnlaugsson
hrl., Stefán Már Stefánsson prófessor og Þór Vilhjálmsson, dómari við
EFTA-dómstólinn.
4. Endurskoðendur voru kjörin þau Helgi V. Jónsson hrl. og Kristín Briem hrl.
Til vara voru kjömir Allan V. Magnússon héraðsdómari og Skúli Guð-
mundsson skrifstofustjóri.
5. Árgjald félagsins var ákveðið óbreytt kr. 3000.
Að lokum þakkaði nýkjörinn formaður félagsins það traust sem henni og
öðrum stjórnarmönnum hafði verið sýnt.
Aðalfundi var síðan slitið og hófst þá fræðafundur Lögfræðingafélags
íslands. Efni fundarins var „Nýjungar í námi við lagadeild - starfsemi Holl-
vinafélags lagadeildar“.
Frummælendur voru Kolbrún Linda ísleifsdóttir, kennslustjóri lagadeildar,
og Halldór Jónatansson, formaður stjórnar Hollvinafélags lagadeildar Háskóla
Islands.
Gestir fundarins voru 20.
Brynhildur Flóvenz
127