Tímarit lögfræðinga - 01.05.2001, Blaðsíða 60
SKÝRSLA STJÓRNAR LÖGFRÆÐINGAFÉLAGS ÍSLANDS 2000
(Ekki er birtur sá kafli skýrslunnar þar sem sagt er frá aðalfundi félagsins
1999, enfrásögn af fundinum birtist í 4. hefti tímaritsins 1999. Skýrslan, sem
lögð var fram á aðalfundi félagsins 31. október 2000, er birt í heild að öðru
leyti.)
1. Inngangur
A fyrsta fundi nýkjörinnar stjómar skipti stjómin þannig með sér verkum:
Helgi I. Jónsson gjaldkeri, Steinunn Guðbjartsdóttir, framkvæmdastjóri Tíma-
rits lögfræðinga, Jóhann R. Benediktsson ritari, Benedikt Bogason meðstjóm-
andi og Páll Arnór Pálsson meðstjómandi.
A starfsárinu hafa verið haldnir 11 stjórnarfundir auk þess sem stjórnarmenn
hafa ntilli funda sinnt ýmsum málefnum félagsins. Kristján Gunnar Valdintars-
son var formaður málþingsnefndar, en með honum í nefndinni voru Benedikt
Bogason og Páll Amór Pálsson. Kristján Gunnar Valdimarsson hefur jafnframt
setið sem fulltrúi lögfræðingafélagsins í sameiginlegri fræðslunefnd lögfræð-
ingafélagsins, lögmannafélagsins og dómarafélagsins þar sem skipulögð hafa
verið námskeið fyrir lögfræðinga í samstarfi við Endurmenntunarstofnun
Háskóla Islands. Benedikt Bogason og Jóhann R. Benediktsson hafa ásamt
framkvæmdastjóra félagsins unnið að undirbúningi fyrirhugaðrar fræðaferðar
til Moskvu og aðrir stjórnarmenn hafa sinnt þeim störfum sem þeim voru falin
á fyrsta stjórnarfundi. Öll framkvæmd verkefna hefur hvílt á herðum fram-
kvæmdastjóra félagsins Brynhildar Flóvenz.
Félagsmenn í Lögfræðingafélagi Islands em nú um 960 talsins.
2. Skrifstofa og framkvæntdastjórn
Engar breytingar voru gerðar á skrifstofuaðstöðu eða framkvæmdastjórn
félagsins á liðnu starfsári. Skrifstofa félagsins er að Alftamýri 9, Reykjavík og
leigir félagið húsnæðið af Lögmannafélagi Islands. Þá hefur félagið einnig
aðgang að Ijósritunarvél og öðrum tækjum lögmannafélagsins. Lögfræðingafé-
lagið hefur starfsmann í hlutastarfi til að sjá um hin ýmsu framkvæmdaatriði
auk þess sem einn stjómarmaður er framkvæmdastjóri Tímarits lögfræðinga. Á
starfssviði framkvæmdastjóra félagsins er m.a. umsjón með útgáfu fréttabréfs
félagsins, umsjón með innheimtu félagsgjalda og áskriftargjalda Tímarits lög-
fræðinga, auglýsingasöfnun o.m.fl. Framkvæmdastjóri félagsins er á skrifstofu
félagsins einn morgun í viku. Brynhildur Flóvenz lögfræðingur hefur verið
framkvæmdastjóri frá ársbyrjun 1995 og er henni þakkað samstarfið á árinu.
Á starfsárinu hefur verið unnið að því að taka tölvutækni í auknum mæli í
notkun í þágu félagsmanna. Byggður hefur verið upp útsendingarlisti með
tölvupóstföngum félagsmanna þannig að unnt sé að minna á fræðafundi og ann-
að sem á döfinni er hverju sinni eftir þeirri hentugu samskiptaleið. Jafnframt
hefur verið unnið að uppbyggingu heimasíðu lögfræðingafélagsins undanfarin
128