Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.05.2001, Blaðsíða 20

Tímarit lögfræðinga - 01.05.2001, Blaðsíða 20
er kveðið á um að manni beri réttur til að njóta þeirra réttinda sem þar eru tal- in. I samningnum um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi hefjast flest ákvæðin hins vegar á yfirlýsingu um að ríki viðurkenni rétt manna, til dæmis til félagslegrar aðstoðar, og lýst er skyldum þeirra til að gera ráðstafan- ir til að framfylgja réttinum. Akvæði Félagsmálasáttmála Evrópu eru sett fram með svipuðum hætti. Þau miða við það að tiltekinn réttur sé til staðar og lýsa honum í fyrirsögn hvers ákvæðis. Hvert ákvæði hefst síðan á því að lýsa yfir skyldum ríkja til að tryggja viðkomandi réttindi með viðeigandi ráðstöfunum. Þessi framsetning, þar sem gengið er út frá skyldu ríkis en ekki rétti einstak- lings, leiðir m.a. til þess að réttindi, sem samningamir ná til, hafa ekki verið tal- in efnisréttindi með beinum réttaráhrifum sem einstaklingar geti byggt rétt á beint fyrir dómstólum aðildarríkja. Er þetta einnig í fullu samræmi við kenning- ar að innanlandsrétti flestra aðildarríkja um eðli þessara réttinda sem áður hef- ur verið lýst.18 Oðru vísi horfir við með flest borgaralegu og stjómmálalegu réttindin sem er lýst afdráttarlaust og markvisst og eru því kölluð lagaleg réttindi eins og áður hefur verið rakið. Dómstólar geta kveðið af eða á um hvort of langt er gengið í takmörkunum á þeim í ákveðnu tilviki. Nálgunin að úrlausn þess hvort brotið hafi verið gegn efnahagslegum og félagslegum réttindum manns er því úr and- stæðri átt, þ.e. hvort sérstakar ráðstafanir ríkisins til að tryggja þau séu nægileg- ar. Hafi ríki engar ráðstafanir gert til þess að uppfylla skuldbindingar sínar kann málið að vera einfaldara, en slík álitaefni virðast þó sjaldgæf. Dæmi eru um að gerður sé sérstakur fyrirvari í alþjóðasamningum um það hvemig efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi verði tryggð. I 4. gr. Samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, þar sem fjallað er um skyldu aðildarríkja til að gera viðeigandi ráðstafanir á sviði lciggjafar og stjómsýslu til að réttindi sem viðurkennd eru í samningnum komi til framkvæmda, segir: „Hvað efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi snertir skulu aðildarríki gera slíkar ráðstaf- anir að því marki sem þau framast hafa bolmagn til“. 7.2 Skortur á alþjóðlegum úrræðum til að fylgja samningum eftir Önnur meginástæða fyrir litlum framgangi efnahagslegra og félagslegra rétt- inda, sem í reynd er nátengd þeirri fyrri, eru veikleikar í alþjóðlegu eftirliti með því að þeim sé fylgt eftir. Beinum kæruleiðum hefur ekki verið komið á fyrir einstaklinga til alþjóðlegra stofnana eða nefnda sem skera úr um hvort réttindi samkvæmt samningunum hafa verið brotin. Öðru vísi horfir við um Mannrétt- indasáttmála Evrópu, sem kveður á um kærurétt vegna brota til Mannréttinda- dómstóls Evrópu, og samninginn um borgaraleg og stjómmálaleg réttindi, sem hefur sérstakan valfrjálsan viðauka um kæruleiðir til nefndar sem starfar sam- kvæmt samningnum. Að auki er einstaklingum opin kæruleið til nefnda sem 18 Martin Scheinin: „Economic and Social Rights as Legal Rights“, bls. 42. 88
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Tímarit lögfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.