Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.05.2001, Síða 18

Tímarit lögfræðinga - 01.05.2001, Síða 18
6. ALÞJÓÐASAMNINGAR UM EFNAHAGSLEG, FÉLAGSLEG OG MENNINGARLEG RÉTTINDI Með Mannréttindayfirlýsingu Sameinuðu þjóðanna frá 10. desember 1948 náðist í fyrsta skipti alþjóðleg samstaða um að telja efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi til grundvallar mannréttinda og að stefna skyldi að virkri vemd þeirra með skuldbindandi alþjóðasamningum. I yfirlýsingunni voru talin í þrjátíu greinum öll mannréttindi án nokkurs greinarmunar eða flokkunar eftir eðli þeirra. Efnahagslegu, félagslegu og menningarlegu réttindin eru til umfjöll- unar í 22.-27. gr. yfirlýsingarinnar og eru þau í stuttu máli eftirfarandi: Réttur til félagslegs öryggis (22. gr.), réttur til vinnu og hagstæðra vinnuskilyrða (23. gr.), réttur til hvíldar og frístunda (24. gr.), réttur til viðunandi lífsskilyrða og réttur mæðra og bama til aðstoðar (25. gr.), réttur til menntunar (26. gr.) og rétt- ur til að taka frjálsan þátt í menningarlífi þjóðfélagsins (27. gr.). Mannréttinda- yfirlýsing Sameinuðu þjóðanna lagði grunninn að alþjóðlegri samningsgerð á sviði mannréttinda, bæði innan Sameinuðu þjóðanna og í samvinnu Evrópu- ríkja.17 Islenska ríkið er aðili að tveimur rnegin alþjóðasamningum um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi, eins og áður hefur komið fram, og báðir útfæra nánar réttindi sem birtast í 22.-27. gr. mannréttindayfirlýsingarinnar. Þetta eru Félagsmálasáttmáli Evrópu frá 1961 sem var fullgiltur af íslandi 1976 og Alþjóðasamningur Sameinuðu þjóðanna um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi frá 1966, fullgiltur af íslands hálfu 1979. Að auki taka ýmsir aðrir samningar, sem Island er aðili að, til þessara réttinda að hluta, þar sem þeir miða að heildarvernd allra réttinda fyrir ákveðna hópa þjóðfélagsins. 1 Samningi Sameinuðu þjóðanna um afnám alls kynþáttamisréttis frá 1965 er til dæmis eitt ákvæði helgað þessum réttindum. Þannig telur e-liður 5. gr. samn- ingsins helstu efnahagslegu, félagslegu og menningarlegu réttindin, sem tryggja ber öllum jafnt án nokkurs greinarmunar vegna kynþáttar, litarháttar, þjóðernis- eða þjóðlegs uppruna. Samningur Sameinuðu þjóðanna um afnám allrar mismununar gagnvart konum frá 1979 hefur það markmið að tryggja þeim öll réttindi jafnt á við karla með sérstakri áherslu þó á efnahagsleg og félagsleg réttindi, til dæmis með afnámi mismununar á vinnumarkaði. í Samn- ingi Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins frá árinu 1989 eru öll réttindi tal- in jafnt án þess að byggt sé á flokkun réttinda eftir eðli þeirra. Félagsmálasáttmáli Evrópu (FSE) og Alþjóðasamningur um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi (SEFMR) eru mjög samsvarandi að efni til. Helstu réttindi, sem þeir ná til, verða nú talin hér í mjög stuttu máli til að gefa yfirlit yfir efni þeirra, með vísan til viðeigandi greinarnúmera samninganna: 17 Itarlega umfjöllun urn hvert ákvæða mannréttindayfirlýsingarinnar má m.a. finna í ritinu: The Universal Declaration of Human Rights. A Common Standard of Achievement. Eds. Guðmundur Alfreðsson og Asbjöm Eide. 86
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Tímarit lögfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.