Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.05.2001, Síða 40

Tímarit lögfræðinga - 01.05.2001, Síða 40
1. LÖGBUNDIN OG MÁLEFNALEG STJÓRNSÝSLA Þegar litið er yfir reglur íslensks stjórnsýsluréttar ber hæst tvær reglur, lögmætisregluna og regluna unt málefnaleg sjónarmið. Samkvæmt fyrrnefndu reglunni er stjómvöldum almennt skylt að reisa ákvarðanir sínar og athafnir á lögum en einnig felst í henni að stjórnvöldum er óheimilt að aðhafast nokkuð sem andstætt er lögum. Síðarnefnda reglan setur stjómvöldum enn frekari skorður með því að hún gerir kröfu um að stjómvaldshafi gæti málefnalegra sjónarmiða við meðferð opinbers valds án tillits til þess hvort skilyrðum lögmætisreglunnar er fullnægt og hefur því einkum jrýðingu þegar stjóm- valdshafi tekur ákvörðun á grundvelli lagaheimildar sem gefur honum svigrúm til mats. Þegar svo er tekið til orða að áðurnefndar reglur beri hæst reglna stjómsýslu- réttar er vísað til þess að flestar aðrar réttarreglur um starfsemi stjómsýslunnar virðast styðjast við eða tengjast þessum tveimur reglum. Málsmeðferðarreglur stjómsýsluréttar, svo sem rannsóknarreglan, reglan um andmælarétt og rök- stuðning, eiga þannig að tryggja að einstakar stjórnvaldsákvarðanir verði í raun lögmætar og málefnalegar. Hið sama á við um reglur um stjómsýslukærur og ýmsar reglur sem lúta að stjómsýslueftirliti. Lögmætisregluna og regluna um málefnaleg sjónarmið má samkvæmt þessu telja grunnreglur íslensks stjóm- sýsluréttar. I þessari grein verður leitast við að varpa ljósi á grunnreglur íslensks stjóm- sýsluréttar með því útskýra þá hagsmuni sent þessar reglur þjóna eða ættu að þjóna. Þetta má einnig orða svo hátíðlega að gerð verði tilraun til að greina sið- ferðileg rök þessara reglna, tilgang þeirra eða gildi fyrir nienn og mannlegt samfélag. I upphafi verður vikið að álitamálum um siðferðilegt gildismat og þýðingu þeirra fyrir þau álitamál sem tekin eru til skoðunar í greininni. Því næst verður rætt um almenn rök lögmætisreglunnar, tengsl hennar við réttamíkishug- myndina og almenna réttlætingu laganna. Að lokunt verður fjallað um regluna um málefnaleg sjónarmið og tengsl hennar við siðferðilegt gildismat. í því sam- bandi verður einnig hugað nánar að eðli matskenndra réttarreglna og því hvort slíkar reglur geti einhvern tíma talist æskilegar. Samkvæmt þessu verður í greininni ekki fjallað sérstaklega um efnislegt inn- tak lögmætisreglunnar og reglunnar um málefnaleg sjónannið, eins og það verð- ur ákveðið samkvæmt almennt viðurkenndum viðhorfum í íslenskum stjórn- sýslurétti. Umfjöllunin er þannig „ópraktísk“ eða óhagnýt í þeim skilningi að ekki verða settar fram leiðbeiningar um hvernig komast beri að niðurstöðum um hvort tilteknar stjómvaldsákvarðanir séu lögmætar og málefnalegar samkvæmt gildandi reglum. Við þetta ber þó að setja þann fyrirvara að ekki er útilokað að siðferðilegt gildismat skipti máli við úrlausn á því hvað er lögmætt og málefna- legt samkvæmt gildandi reglum og verður vikið nokkuð að því efni síðar.1 1 Alitamál um hvort og hvernig siðferðilegt gildismat hefur þýðingu (eða eigi að hafa þýðingu) fyr- ir ályktanir um réttarreglur eru t.d. tekin til skoðunar í grein höfundar: „Um hina einu lögfræðilega réttu niðurstöðu". Úlfljótur, 1. tbl. 1999, bls. 87 o.áfr. 108
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Tímarit lögfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.