Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.05.2001, Page 42

Tímarit lögfræðinga - 01.05.2001, Page 42
ferðilega rétt eða röng; ekki heldur það að gera það sem manni sýnist hverju sinni. Samkvæmt framangreindu leiða efasemdir um tilvist siðferðis ekki sjálfkrafa til þess að hvers konar umfjöllun um siðferðilegt gildi laganna sé haldlaus eða ófræðileg. Sú umfjöllun sem hér fer á eftir er reist á þeini forsendu að unnt sé að komast að niðurstöðu um siðferðileg efni, án þess að reynt verði sérstaklega að sýna fram á tilvist siðferðilegra verðmæta eða afsanna þau. Efasemdir um til- vist siðferðis ráða því ekki úrslitum um það efni sem hér er til umfjöllunar held- ur eru þær öllu heldur sjálfstætt álitaefni sem l’ellur utan viðfangsefnis þessarar greinar. 2.2 Siðferðilegur ágreiningur Fullyrðingar um hvernig við eigunr að haga athöfnum okkar eru almennt reistar á mati á því hvað sé gott, verðmætt eða hafi gildi eins og áður segir. Flestir telja til dæmis að betra sé að vera lifandi en dauður. Ef fallist er á að líf- ið sé gott verður ályktað um enn önnur gildi, til dæmis að betra sé að vera heill en sjúkur, hraustur en linur. Þessi síðamefndu gildi, heilsuna og líkamshreyst- ina, má nefna afleidd þar sem að þau verða rökstudd með vísan annars gildis. Sum gildi, eða lífsgæði eins og þau eru einnig nefnd, verða hins vegar ekki rök- studd með vísan til einhverra annarra gilda. Slík gildi eða verðmæti má nefna endanleg eða frumleg (e. final values, basic values). Fá eða engin siðferðileg verðmæti eru óumdeild. Því kann jafnvel að vera mótmælt að lífið hafi gildi nema að því leyti sem það sé forsenda þess að mað- urinn geti notið vellíðunar. Slík fullyrðing er á því reist að lífið hafi ekki endan- legt gildi heldur ánægjan eða vellíðunin. Samkvæmt þessari skoðun er lífið ekki þess virði að því sé lifað ef það felst eingöngu í þjáningum án vonar um að úr rætist. Af þessu ólíka verðmætamati leiðir til dæmis mismunandi afstöðu til líknardráps, fóstureyðinga og fleira. Með svipuðum hætti leiðir mismunandi verðmætamat til ólíkra niðurstaðna um hvernig haga beri grunnskipan sanrfé- lagsins. Sem dæmi má nefna álitamál um hvort lýðræði (í einhverri mynd) hafi endanlegt gildi eða hvort lýðræðisfyrirkomulag sé eingöngu heppilegt tæki til að ná öðrum markmiðum, svo sem að tryggja eftir föngurn að lög samfélagsins verði réttlát gagnvart borgurunum. Með svipuðum hætti má deila um gildi lag- anna. Kenningar, sem kenndar hafa verið við náttúrurétt, standa til þess að lög- in hafi siðferðilegt gildi, eða séu góð í sjálfu sér, sökum þess að án laga geti borgararnir ekki fullnustað lífsgæði sín. í sumum kenningum í ætt við vildarrétt er því hafnað að lögin séu góð í sjálfu sér og fremur litið á lögin sem tæki sem nota megi jafnt til góðs og ills. í öðrum kenningum sem kenndar eru við vildar- rétt er lagt til grundvallar að úr siðferðilegu gildi laganna verði ekki skorið með aðferðum vísinda og fræða. Að gildi laganna verður vikið hér síðar. Eins og áður segir verður ágreiningur um hvað hafi endanlegt gildi, eða gildi í sjálfu sér, ekki leiddur til lykta með aðferðum raunvísinda. Hvorki verður sýnt fram á að ákveðin endanleg verðmæti séu til eða ekki til þannig að allir sannfær- 110

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.