Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.05.2001, Side 43

Tímarit lögfræðinga - 01.05.2001, Side 43
ist. Fullyrðingin um að lífið hafi endanlegt gildi verður því hvorki sönnuð né afsönnuð, að minnsta kosti ekki með raunvísindalegum aðferðum.3 Sama gildir um allar aðrar fullyrðingar sem af þessu gildi verða leiddar með rökum, til dæm- is að betra sé að vera heill heilsu en sjúkur o.s.frv. Sá sem andmælir gildi lífsins verður hins vegar að færa rök fyrir afstöðu sinni og einnig er eðlilegt að gera þá kröfu að hann hagi athöfnum sínum í samræmi við skoðanir sínar þótt sú krafa styðjist raunar einnig við ákveðið gildismat sem hægt er að deila um. Hafa ber í huga að ágreiningur um siðferðileg efni snýst oft ekki um hvort eitthvað hafi gildi fyrir mannlegar athafnir heldur fremur hver gildi eigi að hafa forgang eða vega þyngst á metunum þegar tvö eða fleiri eru ósamrýmanleg. Þannig hafa rnenn komist að ólíkum niðurstöðum um hvort betra sé að deyja en lifa ófrjáls eða sviptur æru sinni; hvort forræði kvenna á líkama sínum réttlæti fóstureyðingar; hvort tjáningarfrelsið sé svo mikilvægt að heimilt sé að viðhafa meiðandi ummæli í garð annarra, svo einhver dæmi séu nefnd. Agreiningur um siðferðileg efni getur hins vegar einnig komið til af takmark- aðri þekkingu á okkur sjálfum og umheiminum. Olíkt þeim álitamálum sem nefnd eru hér að framan verða þessi atriði rannsökuð með aðferðum vísinda og geta verið leidd til lykta með þeim hætti. Kynþáttafordómar hafa til dæmis ver- ið rökstuddir með vísan til þess að ákveðnir kynþættir séu ólíkir öðrum frá nátt- úrunnar hendi. Formælendur slíkra skoðana hafa í sjálfu sér ekki mótmælt því að almennt sé siðferðilega ranglátt að mismuna mönnum. Þess í stað hafa þeir haldið því fram að ólík sjónarmið eigi við um ólíka kynþætti með hliðsjón af staðreyndum málsins. Eftir því sem rannsóknum raun- og félagsvísinda fleygir fram er hægt að sannreyna hvort skoðanir sem þessar styðjast við viðhlítandi rök. I daglegri umræðu er hins vegar ágreiningi um staðreyndir og gildismat iðu- lega blandað saman með þeim afleiðingum að erfiðara verður að átta sig mál- flutningi talsmanna ólíkra skoðana. Umfjöllun um siðferðilegt gildi meginreglna íslensks stjórnsýsluréttar krefst þess að tekin sé afstaða til siðferðilegra verðmæta eða gilda. Umfjöllunin er þannig ekki siðferðilega hlutlaus greinargerð um grunnreglur stjómsýsluréttar. Samkvæmt framangreindu verða því fæstar þær fullyrðingar sem færðar verða fram óumdeildar eða óumdeilanlegar, en hið sama má reyndar segja um flest skrif á sviði siðfræði, stjómspeki og lögfræði. Það er hins vegar von höfundar að umfjöllun sem þessi bregði einhverju ljósi á þau rök eða þær hugmyndir sem liggja til grundvallar grunnreglum íslensks stjómsýsluréttar, jafnvel í þeim til- vikum sem lesandinn er ósammála forsendum og niðurstöðum höfundar. 3 Margvísleg rök hafa verið færð fyrir siðferðilegum verðmætum, þ.á m. gildi lífsins, þótt hér sé svo komist að orði að ekki hafi verið færðar fram sönnur fyrir þeim. Hér er t.d. hægt að vísa til umfjöllunar J.M. Finnis um siðferðileg verðmæti í ritinu Natural Law and Natural Rights, Oxford 1981. sem Garðar Gíslason gerir að umtalsefni í IV. kafla greinasafns síns, Eru lög nauðsynleg? Reykjavík 1991. 111

x

Tímarit lögfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.