Tímarit lögfræðinga - 01.05.2001, Síða 63
5. Útgáfustarfsemi
Tímarit lögfræðinga kom að venju út fjórum sinnum á starfsárinu. Ritstjóri
tímaritsins er Friðgeir Bjömsson dómstjóri og þakkar stjóm Lögfræðingafélags
Islands honum afar vel unnin störf. Steinunn Guðbjartsdóttir er framkvæmda-
stjóri Tímarits lögfræðinga og eru henni einnig færðar þakkir fyrir vel unnin
störf í þágu tímaritsins.
Auk útgáfu Tímarits lögfræðinga gefur lögfræðingafélagið út fréttabréf
félagsins. Fréttabréfið kemur út nokkrum sinnum á ári og þar birtast einkum til-
kynningar til félagsmanna um það sem framundan er í starfsemi félagsins. Jafn-
framt er fréttabréfið vettvangur fyrir efni sem lögfræðingar kjósa að koma á
framfæri og er ástæða til þess að hvetja félagsmenn til þess að hafa samband ef
um slíkt er að ræða.
Nú er endurprentun eldri hefta Tímarits lögfræðinga lokið þannig að félagið
á nú til sölu heildstætt safn allra hefta sem komið hafa út frá upphafi. Fyrirhug-
að er að vinna markvisst að sölu á heildarsafninu en jafnframt hefur verið tek-
in upp sú nýbreytni að bjóða nýútskrifuðum lögfræðingum eins árs endurgjalds-
lausa kynningaráskrift að tímaritinu. Þess má geta að nú árið 2000 er gefinn út
50. árgangur Tímarits lögfræðinga þannig að útgáfa þess stendur á tímamótum.
Það er mat stjórnar lögfræðingafélagsins að félagsmenn séu almennt ánægðir
með ritið og innlegg þess í fræðilega umfjöllun á vettvangi lögfræðinga. Það er
von stjómarinnar að tilvist Tímarits lögfræðinga hvetji starfandi lögfræðinga til
þess að sinna fræðastörfum og virðist svo sem framboð á fræðigreinum til birt-
ingar í ritinu hafi verið að aukast í seinni tíð.
6. Norrænt samstarf
Lögfræðingafélag íslands tekur þátt í samstarfi á vettvangi heildarsamtaka
lögfræðinga á Norðurlöndum. Ársfundur skrifstofa norrænu lögfræðingafélag-
anna var að þessu sinni haldinn í Helsinki dagana 14.-17. júní sl. Fundinn sótti
Brynhildur Flóvenz, framkvæmdastjóri lögfræðingafélagsins. Þar var m.a. fjall-
að um upplýsingar og samskipti, s.s. heimasíður og upplýsinganet af ýmsu tagi,
félagaskrár og netfangaskrár, nýja þjónustu, m.a. við nýja og unga félaga, og
hvað félög lögfræðinga á Norðurlöndum geti gert til þess að mæta nýjum kröf-
um um laun og ráðningarkjör og almennt um setningu markmiða til lengri og
skemmri tíma, ákvarðanatöku og mannauð.
7. Gjöf til lagadeildar
Lögfræðingafélag íslands og Hollvinafélag lagadeildar Háskóla íslands
aflientu lagadeild sameiginlega skjávarpa að gjöf við útskriftarathöfn laganema
í Lögbergi þann 24. júní sl. Um er að ræða fyrsta skjávarpann sem lagadeild
eignast og með því vildu félögin sýna í verki stuðning við það mikilvæga
fræðslustarf sem unnið er innan lagadeildar og leggja sitt af mörkunt til þess að
kennarar við deildina geti á hverjum tíma nýtt nýjustu upplýsingatækni við störf
131