Tímarit lögfræðinga - 01.05.2001, Side 74
4. STARFSEMI GERÐARDÓMS OG RÁÐGJAFARÞJÓNUSTU
Á tímabilinu frá 28. febrúar 1997 til 27. febrúar 1998 barst verkefnanefnd ein
beiðni um verkefni, en 2 bárust á sama tímabili 1996 til 1997. Beiðnin var frá
dóms- og kirkjumálaráðuneytinu, dags. 28. júní 1997, og laut að samningu
álitsgerðar um stöðu og kjör ríkissaksóknara. Samkvæmt sérstakri beiðni ráðu-
neytisins var þremur kennurum falið að semja álitsgerðina og var henni lokið
29. ágúst 1997.
Fyrir liggur flokkuð skrá yfir álitsgerðir og gerðardóma sem Lagastofnun
hefur staðið að. Er hún varðveitt í skrifstofu lagadeildar. Formaður verkefna-
nefndar er Þorgeir Örlygsson prófessor. Aðrir í nefndinni eru Stefán Már Stef-
ánsson og Sigurður Líndal.
5. ENDURMENNTUN LÖGFRÆÐINGA
Þann 6. desember var undirritaður samningur rnilli Lagastofnunar f.h. laga-
deildar Háskóla Islands annars vegar og Lögmannafélags Islands, Lögfræð-
ingafélags Islands og Dómarafélags Islands hins vegar um endurmenntun lög-
fræðinga. í samningnum er gert ráð fyrir að lögfræðingum verði með nánar til-
greindum takmörkunum heimilað að sitja í kennslustundum og önnur þátttaka í
kjörgreinanámi til jafns við stúdenta og ganga undir próf ef þeir vilja. Þeir skulu
eiga þess kost að fá skriflega staðfestingu lagadeildar á því að þeir hafi stund-
að nám í kjörgreininni og hlotið tiltekna einkunn ef þeir hafa gengizt undir próf.
Lagastofnun kynnir félögunum hvaða kjörgreinar séu í boði, en félögin annast
kynningu meðal félagsmanna og skráningu þeirra sem áhuga sýna og tilkynna
það skrifstofu lagadeildar. Þá er gert ráð fyrir samstarfsnefnd til að fylgjast með
framkvæmd samningsins. Skal hún skipuð tveimur sem Lagastofnun tilnefnir,
tveimur sem félögin tilnefna og einum sem Orator, félag laganema, tilnefnir.
Nefndin hefur verið skipuð og sitja í henni Sigurður Líndal prófessor, Ingveld-
ur Einarsdóttir kennslustjóri, tilnefnd af Lagastofnun, Helgi Jónsson héraðs-
dómari, tilnefndur af Dómarafélagi Islands og Lögfræðingafélagi Islands, Sig-
urbjöm Magnússon hæstaréttarlögmaður, tilnefndur af Lögmannafélagi Islands
og Ólafur Jóhannes Einarsson laganemi, tilnefndur af Orator, félagi laganema.
Sigurður Líndal er formaður nefndarinnar. Nefndin hefur haldið einn fund og
var þar meðal annars ákveðið að námskeiðsgjald skyldi vera 25.000 krónur.
Viðar Már Matthíasson prófessor hafði allan veg og vanda af undirbúningi
málsins.
142