Búnaðarrit - 01.01.1891, Side 80
inn degi áður á sýuingarstaðinn, en sýningin sje opn-
uð, svo að dómur verði á bann lagður áður sýningar-
gestirnir taka almennt að streyma að, og loks
3. Að svo yrði skipað fyrir, að gefa skyldi allan
verðlaunaðan sýningarpening falan við uppboð, án þess
þó að eigandi sje útilokaður frá að bjóða í hann jafnt
sem aðrir, og bjóða hann inn til sín.
2. Um krcppasýningar á lifandi peningi.
Jón Björnsson kom fram með þá tillögu, að fund-
urinn reyndi að stuðla að því, að haldin yrði árlega í
hreppi hverjum í sýslunni sýning á lifandí peningi;
kvaðst hann ætla, að slíkar smásýningar væri nauðsyn-
legar til að hvetja menn til þess, að sýna á sýslusýn-
ingu þær skepnur, er beztar væru innan hreppanna.
Tillögu þessari var vel tekið, og þótti fundinum einnig
æskilegt, að jarðargróði og iðnaður væri hafður til sýn-
is á slíkum hreppasýningum.
Var því samþykkt, að rita hreppsnefndum sýsl-
unnar og æskja þess, að þær tæki mál þetta til íliug-
unar og framkvæmda á þeim tíma, er þeim þykir
henta.
3. Um fjármennsku.
Albert Kristjánsson hreyfði því, hve nauðsynlegt
væri, að fjármennska batnaði almennt frá því, sem nú
væri, og Ijet þá skoðun sína í ljósi, að það myndi tölu-
vert bætast úr þessu, ef hinir beztu fjármenn fengju
opinberlega viðurkenningu þess, að þeir leystu starf sitt
vel af hendi. Mál þetta var töluvert rætt, og komst
fundnrinn að þeirri niðurstöðu í því, að helzta ráðið til
að bæta hirðinguna á búpeningnum væri. að viðbafa al-
menna skoðun á peningi, húsum og heyjum 2—3svar á