Búnaðarrit - 01.12.1919, Page 3
bdnaðabkit
Brot úr ferðasögu.
Síðastliðið sumar ferðaðist jeg, ásamt Guðjóni Samúels-
•syni húsameistara, víðsvegar um Norðurlönd, til þess að
skoða skipulag sjúkrahúsa og gerð þeirra. Jeg hafði allan
vilja til þess, að hyggja að húsakynnum alþýðu í för
þessari, og kynna mjer yfirleitt þær nýjungar í húsagerð,
sem iiklegar þættu til þess að koma hjer að notum, en
gat minna sint því en skyldi. Sjúkrahúsin urðu að sitja
fyrir öðru og tíminn var takmarkaður.
Utveggjagerð var eitt af aðalmálunum, sem rædd
voru á fundi norrænna heilbrigðisfræðinga í Höfn. Skyldu
tveir hefja umræður, Nandelstadh, verkfræðingur frá
Helsingfors í Finnlandi, og próf. Lumbye við fjöllistaskóiann
í Höfn. Nandelstadh skýrði aðallega frá því, að Finnum
hefði tekist að gera álitlegan pappa, til þess að klæða
veggi með o. þvíl. Voru lofthólf milli laga i honum og
pappalagið því allþykt. Ekki gat hann um verð á hon-
um, en annars er þetta ekki nýmæli, því margar til-
raunir hafa verið gerðar í þessa átt og engin komið að
verulegum notum. Jeg tel því hæpið, að þessi finski
pappi verði til mikilla íramfara. Því miður voru engin
sýnishorn af honum.
Þá hjelt próf. Lumbye langt erindi og fróðlegt. Hafði
hann þakið heilan vegg með töflum og línuritum til
skýringar máli sínu, áður en hann tók til máls, og auk
þess stóðu þar á borði tveir tilraunakassar, er áttu að
15