Búnaðarrit - 01.12.1919, Page 12
234
BÚNAÐARRIT
hesthús og svínahús á neðsta gólfi, en hey- og korn-
hlaða á lofti. Fyrir öðrum enda hlaðsins var fjósið, fyrir
8 kýr, og hlaðan. Var hún að nokkru við enda fjóssins,
en hey annars geymt á lofti uppi yfir kúnum. Við hinn
enda hlaðsins stóð lítið smíðahús og annað ekki. Spöl-
korn frá þessum „heimahúsum" stóð stórt, tvílyft timbur-
hús, eflaust 30 álna langt og 12—14 álna breitt, og
kippkorn frá því gamall smiðjukofi. Alls voru þá 8 hús
á bænum, og 4 þeirra stór. Bæjarstæðið var í halla,
hiaðinu hallaði til muna. For var þar litlu minni en hjá
oss og lítið um göngustjettir. Alt skipulagið var ber-
sýnilega gert eftir gamalli venju í dalnum, og lítt tekið
tillit til þeirra leiðbeininga allra, sem norskum bændum
hafa verið gefnar um bæjabyggingar. Menn eru víðar
vanafastir og sofandi en á íslandi!
Herbergjaskipun í íbúðarlmsinu var svo einföld, sem
frekast mátti. Húsið sjálft var nokkuð komið til ára
sinna, og hafði upprunalega verið um 16 álnir á lengd
og 12 á breidd1). Því var blát.t áfram skift í tvö her-
bergi. Annað tók yfir alla brefdd hússins og var stærra
(um 10X12 álnir). Það var baðstofan, eða aðal-íbúðar-
herbergið. Var loft í nokkrum hluta þess, um 3 álnir á
lengd, en í hinum hlutanum ekkí neitt, og sá þar upp
í rjáfrið. Var þar loftgott og ærið hátt undir loft, því
þó aðalveggir væru ekki ýkja háir, var nokkurt „port“
á húsiriu. Upp á loftið gekk lausastigi, og var honum
skotið upp í hurðarlaust loftið, er ekki þurfti um hann
að ganga, en á loftinu undir súð beggja megin voru 2
rúm. Var allur þessi umbúnaður mjög óbrotinn, og ekki
vandaðri en vænta mætti langt uppi í sveit hjer. Um
búnað stofunnar var það annars að segja, að borð var
þar sterklegt í öðru horni dyramegin og breiðir fasta-
bekkir meðfram veggjum á tvo vegu við það. Þá var og
allstór lokaður skápur fyrir húsfreyju. í horninu and-
1) Stærðirnar eru að nokkru leyti ágiskun og ekki nákvæmar.