Búnaðarrit

Volume

Búnaðarrit - 01.12.1919, Page 25

Búnaðarrit - 01.12.1919, Page 25
BtfNAÐARRIT 247 að ekki sjeum vjer lengra komnir áleiðis í kynbótum annars búpenings. „Betur má Jwí, ef duga skal“. Ráðunautar Búnaðarfjelags íslands eiga að vera leið- andi mennirnir í öllum búnaðarframförum landsins. Þeir eiga að marka stefnurnar og leiðbeina bændum í hví- vetna. Besta tœlcifœrið til að vinna búfjárrœlctinni gagn hufa þeir á opinberum búfjársýningum. Samhliða því, sem þeir dæma um verðmæti dýranna, sem sýnd eru, ættu þeir að flytja leiðbeinandi fyrirlestra um kynbætur og til skýringar gera samanburð á sýningardýrunum og benda á augljósustu kosti og galla þeirra. Þetta væri ágætur skóli í þessu efni fyrir bændur, og yrði án efa til að vekja og glæða áhuga þeirra fyrir kynbótum, og auka skilning þeirra á þeim og nytsemi þeirra. En til þess að þetta komi að verulegum og almennum noturn, verður sýningunum að vera svo vel fyrirkomið, sem unt er eftir atvikum, og þær haldnar nægilega oft. Þetta er aðal-umtalsefni þessarar greinar, og skal því nánar að því vikið. Til þess að búfjársýningar nái sem best tilgangi sínum, og verði til verulegra framfara í búfjárrækt, þurfa þær að vera: 1. Bundnar við ákveðin svæði. 2. Haldnar eigi sjaldnar en annaðhvort ár. 3. Hafðar á þeim tíma, sem bændum veitir hægast að sækja þær. 4. Settar á þann stað, er vel liggur við samgöngum fyrir alt svæðið, sem sækja á til þeirra. Auk þessa þarf: 1. Að veita all-há verðlaun, og sæma verðlaunagripum þau dýr, sem best eru af þeim dýrum, er sýnd eru. 2. Að búa sýningarstaðinn út með sýningar-rjettum, svo að sýningin geti farið fram vel og skipulega.

x

Búnaðarrit

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Búnaðarrit
https://timarit.is/publication/595

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.