Búnaðarrit - 01.12.1919, Side 26
248
BÚNAÐARRIT
Að búfjársýningar sjeu bundnar við ákveðin svæði, er
sjálfsagt. Yeðráttufar, landslag, landgæði og meðferð
búfjár er alt nokkuð mismunandi í ýmsum landshlutum,
og fleira eða færra af því er það oft og einatt, þótt í
sama hjeraði sje. En með hliðsjón af þessu verður um-
bóta-viðleitninni að vera hagað, og að því leyti verður
hún því bygð á misjöfnum grundvelli.
Skifting landsins í sýslufjelög gerir það hagkvæmt
að ýmsu leyti, að sýningarsvæðin sjeu bundin við sýslu-
takmörk. Sýningarsvæðin verða með þessu auðvitað mis-
stór, og nokkuð langt að sækja til eins staðar úr fjar-
lægustu hlutum víðlendustu sýslnanna. Þetta eru að vísu
gallar. En á hinn bóginn er hægra um samtök til
ýmsra framkvæmda og til fjárframlaga sjerstaklega,
þegar sýningar-málefnið er málefni alls sýslufjelagsins,
og málefni þess eins, heldur en ef öðruvísi er ástatt.
Tel jeg því rjettast, að fyrst um sinn sje hvert. sýslu-
fjelag sýningarsvæði út af fyrir sig. Þegar svo lengra
líður og sýningannálið hefir unnið sjer þá hylli, sem
það á og þarf að ávinna sjer, þá gætu hin sjerstöku
sýningarsvæði — fleiri eða íærri af þeim — bundist
samtökum um að koma við og við til leiðar fjórðunga-
sýningum, og stutt að því, að sýningar yrðu einstöku
sinnum haldnar fyrir landið alt, þegar timi þætti til
kominn, og verulegs gagns væri að vænta af slikum
lands-sýningum.
Að sýningar í sýslunum sjeu tiðar, tel jeg mikilsvert
atriði, þess vegna lít jeg svo á, að þær þurfi að vera
annaðhvort ár. Því oítar sem sýningar eru, þess moiri
likur eru til að þær nái þeim tilgangi að glæða og efia
áhuga fyrir Jcynbótum búfjár. En nauðsynlegur undir-
búningur undir sýslusýningarnar þarf að minu áliti að
eiga sjer stað. Þessi undirbúningur eru sýningar í hrepp-
unum, sem haldnar sjeu skömmu á undan sýslusýning-
unum. Á þessum undirbúningssýningum í hreppunum
ætti að láta svo hæfa menn dæma um dýrin, sem hægt