Búnaðarrit - 01.12.1919, Side 31
BÚNAÐARRIT
253
Vjer verðutn að stefna að því með festu og einbeittni
að svo tnegi verða. í líkingu talað, þarf krafa vor að
vera sú, að búfje vort breytist í betri og arðbærari
vjelar, en nú er það.
En eitt af öruggustu vopnunum, setn vjer höfum í
hpndum til að ná þessu marJti, tél jeg búfjárstjning-
arnar, sje þeim vel til Jiagað. En vel til Jiagað verður
þeim eJcJti fyr en á eru Jtomnir fastir, vel útbúnir sýn-
ingarstaðir í Jiverju Jijeraði. Það er fyrsta sJtrefið.
Bændur! Athngið þetta mál vel, og þið munuð sann-
færast um gagnsemi góðra búfjársýninga og nauðsyn
þeirra. Minnist þess, að vel valinn sýningarstaður, með
nauðsynlegum útbúnaði, tengir ykkur saman um það,
sem jeg tel eiga að vera eitt ykkar mesta áhugamál,
en það eru kynbætur búfjár. Á sýningarnar eigið þið að
geta sótt aukiun skilning og áhuga á því starfi ykkar.
Góðar búfjársýningar munu reynast vel, og verða
lyftistöng skjótra og heillavænlegra umbóta í búfjárrækt
vorri, og ef til vill verða þær öruggast.a ráðið til að
kveða niður með öllu skæðasta óvin íslensks landbún-
aðar, horfellirinn.
SKÝRINGAR Á UPPDRÆTTINUM.
a) Rjettir fyrir hosta og nautpening:
Gert er ráð fyrir, að sýningardýrin sjeu höfð í básum eitt og
eitt. Skal setja karldýrin í básana til vinstri, en kvendýr til
hægri. Á uppdrættinum eru raðirnar 5, og myndast samfeldur
hringur eða rjett á milli básaraðanna, og er ætlast til að í
það rúm sjeu sýningardýrin látín, fyrst er þau koma á sýn-
ingarstaðinn Þaðan eru þau síðan eitt og eitt færð inn í
hálfhring þann, er dreginn er upp framan við básaraðirnar,
og þar er ætlast til að dómnefndin starfi. Er dómnefnd hefir
athugað dýrið, er farið með það út um aðrar hvorar hliðar-
dyrnar, og það sett í bás í 1., 2., 3. eða 4. röð, eftir því liver
verðlaun það hlýtur.