Búnaðarrit - 01.12.1919, Page 46
266
BÚNAÐARRIT
seldur fyrir kringum kr. 3,50 kg., en sumt af því seld-
ist eitthvað lítið hærra. Mun þá mega gera ráð fyrir,
að búin hafi fengið fyrir þetta smjör alt að 120 þús. kr.
Árið 1918 starfa 12 bú, lengri og styttri tíma. Smjör-
framleiðsla búanna var nálægt 30000 kg. — Smjörið
var selt alt innanlands, mest í Reykjavík. Verðið á
smjörinu frá búunum var svipað og ella gerðist um
verð á öðru smjöri frá einstökum heimilum.
Um Yxnálœkjar-smjörbúiö skal það tekið fram, að
þessi tvö ár, 1917 og 1918, starfaði það ekki, aðal-
lega af þeirri ástæðu, að sumir af fjelögum þess seldu
mjólk til Reykjavíkur.
Einnig er þess að geta, að sum smjörbúin hafa, sjer-
staklega siðustu árin, lagt, samhliða smjörgerðinni, stund
á ostagerð. Meðal þeirra eru Baugsstaðabúið, Hróars-
lækjarbúið, Landmannabúið, Rauðalækjarbúið, Sandvikur-
búið, Þykkvabæjarbúið o. s. frv. Hafa þau selt ost fyrir
200—1000 kr. hvert á ári. Er það allgóður búbætir.
Árið, sem er að líða (1919), störfuðu að eins 6
smjörbú. Þau voru þessi: Áslækjar, Baugsstaða, Hróars-
holts, Rauðalækjar, Sandvíkur og Þykkvabæjar. — Af
þessum búum eru 4 í Árnessýslu og 2 í Rangárvalla-
sýslu.
Smjörið sem búið var til eða framleitt, mun haía
■orðið um 15000 kg. Var það alt selt ínnanlands.
Smjörbúin sem lögð hafa verið algerlega niður þessi
árin, síðan 1915, eru þessi:
Nöfn búanna. Stofnár. Lagt niður.
1. „Fram“ (Skagaf.) 1907 1916
2. Fossvalla (Árn ) 1904 1917
3. Möðruvalla (Eyf.) 1905 1917
4. Apár (Árn.) 1904 1918
5. Svarfdæla (Eyf.) 1912 1918
6. Kálfár (Árn.) 1902 1919
7. Kjósarmanna (Kjósars.). . 1906 1919