Búnaðarrit

Årgang

Búnaðarrit - 01.12.1919, Side 53

Búnaðarrit - 01.12.1919, Side 53
BÚNAÐAftRIT 273 og komið til leiðar. — Þessar umbætur í smjörgerðinni eru aðallega tvennskonar. Það heflr verið framleitt meira smjör í landinu en áður var, miðað við málnytu; þrifn- aðnr allur í meðferð mjóllcur er alment meiri en gerðist fyrir 20 árum, og smjörverlmnin heflr stórum batnað. Og í sambandi við bætta smjörverkun er það, að sæmi- legur markaður fjekkst fyrir íslenskt smjör erlendis, og um leið hærra verð fyrir það en áður gerðist. Auk þessa eiga rót sína að rekja til smjörbúanna ýmsar nýjungar í búnaði, er stóðu í sambandi vlð starfsemi þeirra, og ruddu sjer til rúms á næstu árum eftir alda- mótin síðustu. Má þar meðal annars nefna notkun vagna og akstur. Smjörbúa-fjelagsskapurinn undirbjó, beint og óbeint, sláturhúsa-fjelagsskapinn hjer á landi. Smjörbúin ruddu þar brautina. Fleira gott mætti nefna, er af smjörbúa-fjelagsskapnum leiddi, og miðaði til umbóta í búnaði. — En hjer skal eigi íarið lengra út í þá sálma. Hitt er víst, að ef smjörbúa-fjelagsskapurinn iíður undir lok, kemur kyrstaða, eða öllu heldur afturför í alla smjörgerð hjer á landi. Verklega kunnáttan í smjör- verkun, sem mjólkurskólinn kom tíl leiðar, hverfur smátt og smátt. Það verður hætt að vanda smjörgerðina, er frá líður, eigi síst þegar af þeirri ástæðu, að ekki verður um sölu á smjöri að ræða til útlanda, þegar smjörbúin leggjast niður. Það er meira að segja farið strax að brydda á því. Mjer hafa tjað skilorðir menn, er finna „hvað feitt er á stykkinu", að síðan tók fyrir útflutning á smjöri, og farið var að selja „rjómabússmjörið" innan- lands, hafl verkun þess hnignað eða farið aftur. Og um smjör frá einstökum heimilum er svipað að segja. Það er ekki eins gott og það var fyrir stríðið. Það má vel vera, að þetta stafl að einhverju leyti af því, hvað eftirspurnin heflr verið mikil nú að undan- förnu, og smjörverðið hátt. Aukin eftirspurn eftir hvaða 18

x

Búnaðarrit

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Búnaðarrit
https://timarit.is/publication/595

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.