Búnaðarrit - 01.12.1919, Blaðsíða 60
280
BtiNAÐARRÍT
svo sem áður er sýnt. Viðlagasjóður hefir þar engu
tapað fram að þessu.
Alþingi verður nú á ný að heimila lán með góðum
kjörum, tii Þess að endurbyggja smjörskálana, þar sem
þess þarf, og til kaupa á nýjum áhöldum. Það er óhjá-
kvæmilegt.
Um smjörsöluhorfurnar í Englandi er erfitt að segja
nokkuð, nú sem stendur. Fram að þessu hefir ekki, síðan
tók fyrir útflutning á smjöri, svarað kostnaði að senda
smjörið út. Verðið á því var í Englandi í haust kr. 5,00
—5,50 kg. En síðan mun það hafa eitthvað hækkað.
Ástæðan til þess, að verðið á smjöri í Englandi er
— eða var — ekki hærra en þetta, er meðal annars sú,
að tímarnir eru erfiðir hjá vinnulýðnum, og getan til
að eignast smjör, lítil. Auk þess hefir smjörlíkisgerðinni
fleygt þar fram á síðustu tímum, og fólkið lært að nota
það til viðbits. Enn er það, að Englendingar hafa nú
siðari árin lagt stund á nýrækt, og ræktað mikið af
landi, er áður var lítt ræktað eða í órækt. Og um leið
hefir þá kúnum iítið eitt fjöigað, og smjörframleiðslan
aukist. Heita þeir verðlaunum á hvert smjör-kílógram
sem verkað er til sölu. Er þetta vitanlega gert, til þess
að hvetja menn til kúaræktar og smjörgerðar, svo að
minna þurfi að flytja inn af smjöri frá öðrum löndum.
Hitt er þó talið víst, að þessi smjöraukning nái skamt
til þess að fullnægja smjörþörfinni, er fram í sækir, og
hagur þjóðarinnar batnar, og getan til að kaupa, eykst
hjá almenningi.
Innflutningur á smjöri til Englands minkaði mjög
eftir að ófriðurinn hófst. En það er búist við, að hann
aukist á ný, eins og þegar er getið, og verði eftir nokk-
urn tíma svipaður því, sem var fyrir stríðið. Á þessu byggja
Danir, og fleiri þjóðir, sínar smjörsölu-vonir í Englandi.
'Til Englands var ílutt af smjöri frá ýmsum löndum
í enskum vættum (50,8 kg. vættin) sem hjer segir: