Hugur - 01.01.1992, Blaðsíða 34
32
Bryan Magee
HUGUR
Nei. Að vísu kemur hún inn með sögulegan þátt, en ekki afstæðis-
hyggjuþátt. Sérhver staðhæfing eða kenning sem er orðuð á ótvíræðan
hátt er annaðhvort sönn eða ósönn; þriðji möguleikinn er ekki til. En
ein ósönn eða röng kenning getur verið nær sannleikanum en önnur.
Og það getur líka verið að ein sönn eða rétt kenning hafi meiri
sannleika að geyma en önnur; hún kann að hafa meira
„sannleiksinntak“, eins og ég kalla það.
Dœmi?
Ef við segjum að klukkuna vanti nú þrjár mínútur í tólf, þá er sú
staðhæfing blátt áfram ósönn að hana vanti fimm mínútur í tólf, en
hún er nær sannleikanum en staðhæfingin að annaðhvort vanti hana
tíu mínútur í tólf eða hún sé tíu mínútur yfir tólf. Einnig hefur ósanna
staðhæfingin að klukkuna vanti nú fimm mínútur í tólf meira
sannleiksinntak en óljós sönn staðhæfing eins og klukkan er nú milli
ellefu og eitt. Það er að segja, stærri flokk sannra staðhæfinga leiðir af
henni.
Hvernig stendur á því að þú hefur alla œvi aðallega fengist við
raunvísindi og raunvísindalega þekkingu frekar en aðrar tegundir
þekkingar?
Vísindamennirnir miklu og byltingarkenndar kenningar þeirra
vöktu aðdáun hjá mér. Auk þess eru raunvísindi einungis almenn
skynsemi í öflugri mynd. Gagnrýni er hluti af almennri skynsemi. Það
er hluti af almennri skynsemi að leggja skoðanir sem byggjast á
almennri skynsemi fram til gagnrýni; og raunvísindin eru einfaldlega
árangurinn af þessari gagnrýni.
Nú hefurþú spurt: Hvað eru vísindi? Og aðferðin sem þú leggur til
að notuð sé til að draga mörkin milli vísinda og gervivísinda er eitt
mikilvcegasta framlag þitt til heimspeki.
Tillaga mín er að telja kenningu til raunvísinda ef við getum sagt til
um það, hvers konar atburður það væri sem við mundum fallast á að
væri afsönnun á kenningunni. Eða með öðrum orðum, kenning telst til
raunvísinda ef hún er í grundvallaratriðum afsannanleg. Kenning sem
getur ekki stangast á við neinn mögulegan eða hugsanlegan atburð er,
samkvæmt þessari skoðun, utan við raunvísindi.
Við skulum hafa þetta alveg á hreinu — þú segir ekki að það sem
er utan við raunvísindi þurfi endilega að vera rangt. Enn síður
merkingarlaust.