Hugur - 01.01.1992, Blaðsíða 13

Hugur - 01.01.1992, Blaðsíða 13
HUGUR Sendibréf um frelsi 11 haldið fram, t.d. Nozick, er að B skerði þá og því aðeins frelsi A að hann brjóti rétt á A.9 Báðar þessar kenningar stangast hins vegar alvarlega á við daglega málnotkun — og að mér sýnist öldungis að ástæðulausu. Ef við lítum fyrst á þá síðari, réttindakenningu frjáls- hyggjumannanna, þá felur hún m.a. í sér að fangavörður sem lokar glæpamann inni í klefa sé ekki að skerða frelsi hans, svo fremi að fanginn hafi hlotið réttlátan dóm. En hvaða ástæða er til að þrengja frelsishugtakið á þennan hátt? Því ekki að segja að vitaskuld skerði fangavörðurinn frelsi fangans en að í þessu tilviki sé það réttlætan- legt? Ætlunarkenningin er ekki eins auðhrakin. Hún skýrir t.d. vel muninn á hindrunum sem verða til fyrir algjöra slysni (hindrunum sem einvörðungu skerða getu manna) og hinum sem vísvitandi hefur verið stefnt gegn frelsi þeirra. Við getum tekið dæmi af manni sem er að labba um að vorlagi í fjallshlíð og rekur óvart fótinn í stóran stein. Steinninn mjakast ögn til og vegna þess gerist það svo í asahláku um haustið að hann fellur niður hlíðina og fyrir munnann á helli sem gangnamenn hafa látið fyrirberast í. Auðvitað væri fáránlegt að halda því fram að göngumaðurinn hafi um vorið skert frelsi gangna- mannanna til að komast út. Þetta skýrir ætlunarkenningin vel. Hins vegar er ljóður hennar sá að geta ekki gert grein fyrir — sem frelsis- skerðingum — hindrunum er skapast vegna vanrækslusynda eða gáleysis, né því hvemig hindrun sem B hefur ekki upphaflega átt þátt í að skapa getur skert frelsi A. Tökum dæmi: Einn gangnamannanna leikur sér að því að losa um stóran stein fyrir ofan hellismunnann. Það er ekki ásetningur hans að loka félaga sína inni en hann ætti að vita að með þessu háttalagi gæti steinninn auðveldlega oltið og lokað munnanum. Segjum að það gerist. Þá væri það furðu óburðug afsökun hjá honum að kalla inn til félaga sinna og segja: „Ykkur er frjálst að koma út þótt þið getið það ekki. Ég ætlaði ekki að skerða frelsi ykkar og því emð þið ekki ófrjálsir." Eða hugsum okkur að steinninn falli án milligöngu nokkurs og loki gangnamennina inni. Aðvífandi maður kemur þar að og getur auðveldlega losað steininn en lætur það eiga sig. Ég hygg að við hlytum að segja að hann skerði frelsi gangna- mannanna til að komast út. Þetta getur ætlunarkenningin ekki heldur 9 Sjá t.d. Nozick, R., Anarchy, State, and Utopia (Oxford: Basil Blackwell, 1971), bls. 262-264.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124

x

Hugur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.