Hugur - 01.01.1992, Blaðsíða 12

Hugur - 01.01.1992, Blaðsíða 12
10 Kristján Kristjánsson HUGUR endilega ófrjálsari þótt hann geri það ekki. Venjulegum manni á íslandi er t.d. jafnfrjálst að neyta atkvæðisréttar síns þótt hann nenni ekki að velta því fyrir sér hvort Steingrímur sé betri en Davíð; kjósi bara eins og pabbi eða mæti kannski ekki einu sinni á kjörstað. Hin svokallaða jákvæða skilgreining frelsishugtaksins vanhelgar kenni- mörk þess með því að blanda því saman við önnur og óskyld gæði.6 Talsmenn hennar gleyma því að frelsi er kostur en ekki athöfn og að þaÖ þarf tvo til: Maður getur ekki skert eigið frelsi — nema þá í gegnum einhvern annan aðila (eins og þegar Odysseifur lét skip- verjana reyra sig við siglutréð svo að Sírenurnar næðu ekki að seiða hann til sín). Það var Isaiah Berlin sem fyrstur greindi skipulega milli neikvœðra og jákvœðra skilgreininga á frelsi í frægri grein á miðjum 6. áratugnum7 og þótt margt megi að lýsingu hans finna þá er ég í stórum dráttum sammála niðurstöðu hans: að marktæk skilgreining frelsishugtaksins sé „neikvæð" í þeim skilningi að hún lýsi kosti manns á að framkvæma einhverja athöfn að svo miklu leyti sem þessi kostur er ekki skertur af öðrum. (Neikvætt frelsi er hins vegar oft ranglega túlkað svo að það sé frelsi undan, ekki frelsi til. Auðvitað er allt frelsi jöfnum höndum frelsi undan og til; spurningin er bara undan hverju!). En þótt maður hafi komið sér niður á að frelsið beri að skilgreina neikvætt þá er ekki nema hálfur sigur unninn. Talsmenn neikvæðs frelsis eru nefnilega alls ekki sammála um nákvæmlega hvenær aðili B skerði kost A til að framkvæma einhverja athöfn. Þær tvær kenningar sem mestrar hylli njóta nú á dögum um þetta efni eru svokölluð ætlunarkenning annars vegar og hins vegar réttinda- kenning. Fyrri kenningin, sem oft er kennd við frjálslyndi eða „liberalisma“, gengur út á að B skerði þá og því aðeins frelsi A að hann hafi lagt stein í götu hans af ásettu ráði. Þetta er t.d. skoðun Berlins.8 Hin síðari, sem frjálshyggjumenn eða „libertarians" hafa 6 Ég ræði annað afbrigði ,jákvæðs frclsis", hina svokölluðu þýhyggju, í grein minni, „Að geta um frjálst höfuð strokið" í Þroskakostum (Reykjavík: Rannsóknarstofnun í siðfræði, 1992), bls. 164-169. 7 Berlin, I., „Two Concepts of Liberty“, endurpr. í Four Essays On Liberty (Oxford: Oxford University Press, 1969). 8 Sjá sömu grein, þó að Berlin stingi að vísu upp á ýmsum öðrum kenningum þar og í formála bókarinnar. Skilmerkilegri framsetingu má t.d. finna hjá Day, J. P. í „Is the Concept of Freedom Esscntially Contestable?" Philosophy, 61(1986).
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124

x

Hugur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.