Búnaðarrit

Årgang

Búnaðarrit - 01.01.1922, Side 40

Búnaðarrit - 01.01.1922, Side 40
34 BÚNAÐAKRIT Mélgras. Vanalega er melgras fullþroskað um miðjan september. Best að safna því frá 10.—20. sept. Þegar axið er fullvaxið, breytir það lit, missir græna litinn, en verður bleikt. Losnar þá kornið í því, og fýkur, ef stormur kemur. Fræinu skal sá svo fljótt að vorinu, sem hægt er, strax og klaka ieysir. Gæta skal þess að sá ekki of þjett, við það verða plönturnar kraftminni. Því skal sá ca. 10 cm. niður. Best að sá í plógför, með t. d. 50 cm. millibili, eða í holur, sem grafnar eru. Gera skal þær 10—20 cm. djúpar og losa botninn vel; skulu þær settar þannig í raðir, að hver röðin loki annari (likt og margir setja jarðepli). Holurnar eru vanalega hafðar um 70 cm. í þvermál og 1 m. milli þeirra, Botninn skal vera sijettur, annars vill fræið safnast þangað, sem lægra er, og liggja þar of-þjett. Best er að hera ábuið í hol- urnar, yflr fræið, og strá svo litlu af sandi yfir. Dreif- sáning reynist eigi vel, nema breitt sje yfir sáninguna t. d. lyng, víðir, hey, þari eða annað haldgott efni. Melfræ er hægt að fá keypt hjá sandgiæðslu-verði, ef beðið er um það í tíma, t. d. sumarið áður en á að nota það. Verð á því hefir verið 25—35 au. pr. pd,, þ. e. 50—70 au. fyrir kg. Melgras má gróðursetja, þ. e. taka plöntur upp og setja þær niður aftur. Á rótum plantnanna eru liðir, og skal einn rótarliður fylgja hverri plöntu, sem gróðursett er, og hún sett vel djúpt niður, t. d. upp á mitt blaðs- liður. Frá rótailiðnum koma rótarskot^ sem jarðfesta plöntuna. Melgras vex best í lausum og heldur þurrum jarðvegi.

x

Búnaðarrit

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Búnaðarrit
https://timarit.is/publication/595

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.