Búnaðarrit - 01.01.1922, Blaðsíða 57
UÚNAÐARRIT
Um Flóaáveitu-málið.
[Á siðastl. sumri fór landsstjórnin þess á leit við Búnaðarfjelag
lalands, að það kynti sjer Flóaáveitu-málið og segði álit sitt um
það. — S. Sigurðsson forseti ferðaðist um Flóann í nokkra daga
í ágústmánuði, til að kynna sjer staðbætti þar, og í nóvember-
byrjun, þegar Valtjr Stefánsson kom úr sumar-ferðalaginu, fjekk
fjelagið að láni öll plögg er snerta áveituna, til þess að hægt
væri að kynnast undirbúningi málsins.
1. desember sendi fjelagið stjórninni umsögn sína um málið,
ásamt tillögum viðvíkjandi framkvæmdum. — Kom þetta fyrst til
umræðu á fundi við ölfusárbrú, sem atvinnumálaráðherra hjelt
6. desember með stjórn Flóaáveitu-fjelagsins, starfsmönnum Bún-
aðarfjelags íslands og nokkrum öðrum.
Þar eð mál þetta er svo mikilsvarðandi fyrir landið í heild
sinni og framtið landbúnaðarins, þykir rjott að birta þessa um-
sögn fjelagsins, eins og hún var send stjórnarráðinu, enda þótt
timinn hafi verið svo stuttur til athugunar á þessu mikla máli,
að margt sje lijer ókrufið og óumtalað or því viðkemur. —
Á almennum umræðufundi við ölfusárbrú, þar som all-margir
búendur úr Flóanum voru saman komnir, skýrði Sigurður for-
seti og Valtjr Stefánsson frá aðal-dráttum umsagnar þessarar og
tillögunum. — Stjórn Flóaáveitu-fjolagsins skjrði þar frá því, að
útlit væri fyrir að tillögur þessar yrðu teknar til greina, enda
kom það mjög heim við álit þeirra, sem til máls tóku á fundinum].
Fyrstl nndirbúningar. Án þesa að ætla að rekja
hjer sögu Flóaáveitu-málsins er nauðsynlegt til skilnings-
auka, að gera grein íyrir uppruna og undirbúningi.