Búnaðarrit - 01.01.1922, Blaðsíða 15
BÚNAÐARRIT
Af öðrum girðingarefnum. sem voru á sýningunni,
skal nefna:
„ DansJc Staalgœrde“, sýnt af Jónatan Þor-
steinssyni. — Það er l,io m. á hæð, með möskv-
um 10 cm. háum og 30 cm. löngum neðst, en ofar 20
cm. háum; sem þykir einkum hentugt þar sem veru-
lega þarf að vanda til girðinga, svo sem um trjá- og sáð-
reiti. — Þá voru og sýnd nokkur smá-möskvuð vírnet,
en þau þykja eigi komandi til greina sem „praktisk^
girðingarefni.
Sýnismunir af innlendum uppruna í þessari deild, er
þykja viðurkenningarverðir, eru þessir:
Hliðlás, sýndur af Eggert Konráðssyni,
Haukagili í Vatnsdal. — Lásinn er þannig gerður, að
auðvelt mun vera að opna og loka af hestbaki, en
hurðin fellur þannig í lás, að hún opnast trauðlega
nema af mannavöldum.
Girðingalausnin „JolcuUu, sýnd af Gunnari Jóna-
tanssyni, Reykjum í Fnjóskadal. — Fyrir venjulega
kengi, til að festa vírinn við girðingarstólpana, eru
hafðir tveir tittir, sem vírinn liggur á milli, með lykkju
fremst, og í gegnum þá rekinn nagli, sem hæglega má
kippa úr, og er vírinn þá laus við stólpann. — Ætlast
til að komi að notum þar sem snjóþungt er.
V. Mjólburáhöld.
(Nefndarálit 7. deildar búnaðarsýningarinnar).
Samkvæmt ákvörðun Búnaðarfjelags íslands voru
reyndar skilvindutegundir þær, er sendar voru á bús-
áhaldasýninguna i Reykjavík sumarið 1921. Skilvind-