Búnaðarrit - 01.01.1922, Blaðsíða 20
14
BÚNAÐARRIT
Skilvindan skilur um 65 lítra á kl.st., en það er heldur
minna en til er tekið frá verksmiðjunni. Borið er á skil-
vinduna á tveimur sjálfluktum stöðum, og auðvelt er
að hreinsa hana og setja saman, vegna þess hvað gerðin
er einföld. Skilvindan nær ekki rjett vel feitinni úr
mjólkinni, eins og sjest á feitikönnunar-töflunni, og er
því ólík „Titansu skálakerfis skilvindunum stóru, sem
gerðar eru fyrir vjela-afl. — Útsöluverðið er Kr. 175,00.
Vélox (A.-O.), sýnd og seld af verslun Jóns
Þórðarsonar í Reykjavík. — Skilvindan er sterkleg
og fremur vel gerð. Hún skilur 66 litra á kl.st., og það
er dálítið meira en tiltekið er frá verksmiðjunni. í skil-
vindunni er innilukt hringþynnukerfi, og er því all-
seinlegt að hreinsa hana og setja saman. Snúningshraði
sveifarinnar er 70 umferðir á mínútu, en sá hraði þreytir
dálítið til lengdar. Skilvindan má samt heita snúnings-
ijett, og nær feitinni all-vel úr mjólkinni, eins og íeiti-
könnunar-taflan her msð sjer. — Útsöluverð er Kr.
150,00.
Zenit, sýnd og seld af Sambandi isl. sam-
vinnufjelaga. — Skilvibdan er fremur veikbygð, en
vel gerð að öðru leyti. Hún skiíur um 70 lítra á kl.st.,
eins og til er tekið frá verksmiðjunni. í skilvindunni er
innilukt hringþynnukerfi, er því seinlegt að hreinsa hana
og setja saman. Snúningshraði sveifarinnar er um 70
hringferðir á minútu. Skilvindarr er óvenju snúnings-
Ijett og þreytir litið þrátt fyrir hraðann. Ilt er að stilla
rjómaþykkni skilvindunnar, því rjómaskrúfan er fest
þannig frá verksmiðjunni, og er sýnilega til þess ætlast
að rjóminn sje ekki hafður meiri en 12°/o af mjólkur-
magninu. Skilvindan nær all-vel feitinni úr mjólkinni,
eins og feitikönnunar-taflan sýnir. — Útsöluverðið er
Kr. 100,00.