Búnaðarrit

Årgang

Búnaðarrit - 01.01.1922, Side 59

Búnaðarrit - 01.01.1922, Side 59
BtiNAÐARRIT öS Bollaleggingar Sæm. Eyjólfssonar eru talsvert ítaileg- ar, og eru allar Jíkur til þess, að þær hafl verið áhrifa- miklar um framtíð málsins seinna. Þótt áætlunin sje ófullkomin, er honum það Ijóst, að eigi er hún fullgild, nema gert sje álit á því, hve mikið fáist fyrir fje það, sem lagt er i verkið, og er það í stuttu máli hans álit, að útheyskapur þrefaldist, en kostnaðnrinn við öflun hans nokkru meira en tvöfaldist. Árstekjur af áveitunni verði nál. 105 þús. kr., en önnur verk, auk aðfærsluskurðsins, telur hann verði um 40 þús. kr. Og þó svo ólíklega vilji til, að hans áliti, að verkið kosti alt í alt 200 þús. kr., þá borgi áveitan upp allan kostnað á tveim árum. Eðlilegt er að svona glæsilegur útreikningur hafl náð þeim tökum á almenningi, að málið yrði trauðla svæft, meðan ummæli þessi lifðu i minnum manna, eða eimur af þeim. Daufara er hljóðið í Sæm. Eyjólfssyni árið eftir, þar sem hann í Skýrslu Búnaðarfjelags Suðuramtsins árið 1895 segir að mönnum þyki áveitu-fyrirtækið „horfa til svo mikils kostnaðar, að bændur 1 þessum sveitum treystast ekki að koma því til framkvæmdar". Og það þó ágiskun hans um kostnað og hagnað — um að alt borgist á tveim árum — hafl ekki verið hrakin. Að minsta kosti höfum við ekki fundið neitt slíkt prentað, svo það hafl komið fyrir almennings sjónir. Það sama ár mælir Sæm. Eyjólfsson fyrir upptöku Hvítár á Brúnastaðaflötum og vestan við Brúnastaða- holt. Kemst hann að þeirri niðurstöðu, að Hvítá verði flýrari en Þjórsá á Flóann. Hann áætlar Hvítár-skurðinn jafn-dýran Þjórsár-skurðinum um Merkurlaut — en áveitusvæðið þaðan vitanlega mikið minna. — Hjer virð- ist vaka alveg sama fyrir Sæm. og áður; rannsóknin í sjálfu sjer mætti staðnæmast við það, að vatn „náist upp á“ Flóann. Því þegar hann hefir fullvissað sig um,

x

Búnaðarrit

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Búnaðarrit
https://timarit.is/publication/595

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.