Búnaðarrit - 01.01.1928, Page 8
2
BÍJNAÐARRIT
í greinargerð frumvarpsins er þannig komist að orði:
Til þess að bændur á áveitusvæðinu geti notfært
sjer væntanlegan grasauka þarf ýmislegt fleira en
sjálfa áveituna. Má þar til nefna vegi um áveitusvæð-
ið, svo að fært sje að koma afurðum frá sjer á að-
alveg. Vitaskuld verður ekki til þess ætlast, að hið
opinbera annist vegagerð heim að hverju býli, en
aftur á móti verður ekki sagt, að hið opinbera skilj-
ist nægilega vel við þetta stærsta landbúnaðarfyrir-
tæki, sem stofnað hefir verið hjer á landi, nema
veganet sje lagt þar, þannig að ekki megi ókleift telj-
ast hverjuin einstökum að leggja veg heim til sín
eða flytja afurðir á veg.
Ef Flóaáveitan hepnast eins og flestir munu gera
sjer von uæ, er ekki efi á því, að mjólkurframleiðsla
eykst mjög á áveitusvæðinu og þarf þá að sjá fyrir
að unt sje að koma mjólkinni í pe.ninga. Hversu það
megi best verða er enn órannsakað mál, en einsætt
virðist, að til þess þurfi sameiginlegt eða sameiginleg
mjólkurbú.
f*að er nú tilgangur þessa frv., bæði að tryggja
það, að nauðsynleg rannsókn fari fram í umræddum
efnum, og að heimila stjórninni nauðsynlegar fram-
kvæmdir, eftir niðurstöðu rannsóknanna.
Stjórninni er það vitaskuld ljóst, að til þess að
Flóaáveitan komi að fullum notum þarf að bæta
samgöngurnar milli Reykjavíkur og áveitusvæðisins,
en uin það atriði verður ekki rætt í þessu sambandi.
Vel má og vera, að einhverjar aðrar framkvæmdir
en hjer hafa verið nefndar, verði að teljast nauðsyn-
legar og falla þær þá undir heimild frumvarpsins.
En frv., eins og það var samþykt, er svohljóðandi: