Búnaðarrit - 01.01.1928, Page 31
BtJNAÐARRIT
25
Búnaðarfjelags ísl. Hafði hann tal af nokkrum bænd-
um og kynti sjer rekstur rjómabúanna, einkum Sand-
víkurbús og Hróarslækjarbús.
Síðan gerði hann áætlun um stofnkostnað og rekst-
ur mjólkurbúa af þessum stærðum.
1. er tekið gæti við tæpl. 1 miljón lítra mjólkur á
ári.
2. er tekið gæti við 3 milj. Itr. mjólkur árlega.
3. er tekið gæti við alt að 6 milj. litra árlega.
Pað, sem fyrir honum vakti, var annaðhvort
að hafa mjólkurvinsluna þrískifta í Fióanum og
menn stofnuðu þar 3 mjólkurbú, eins og rjóma-
búin hafa verið þrjú þar, ellegar að stofnað væri eitt
bú. Leit hann svo á, að 3 bú er gætu samlagt tekið
við 3 milj. ltr. mjólkur árlega, eða eitt 3 milj. ltr.
bú fullnægði þeirri þörf, sem þarna væri nú.
D. rjeði þó, nokkuð óákveðið að vísu, að stofna til
þriggja mjólkurbúa, sem hvert gæti unnið úr 3 milj. lítra
mjólkur árlega. Vegna flutningsörðugleika taldi hann
ekki ráðlegt að stofna eitt bú fyrir allan Flóann.
Er sú ástæða hans nokkuð skiljanleg, þar eð hann
var þarna lílt kunnur staðbáttum og hefir ekki ver-
ið ljóst, hverjar vegabætur voru fyrirhugaðar á á-
veitusvæðinu.
Nú hefir nefndin leitað álits forstjóra »Statens
Forsögsmejericc í Danmörku, og teiur hann að ef mjólk-
in sje kæld eftir mjaltirnar niður í 15° eða lægra,
þá geti hún haldist vel óskemd, og þoli alllangan
flutning. Með tillili til þessa og annara fenginna
upplýsinga, sjerstaklega frá Noregi, þá verður ekki
talið að svæðið sje of stórt fyrir eitt bú, þegar ak-
vegir eru þar komnir í sæmilegt horf.
Sumir liðir í áætlun Diederiksens, svo sem áætl-