Búnaðarrit - 01.01.1928, Page 50
44
BÚNAÐARRIT
bæði í landi Selfoss og Laugardæla. Aðalkröfur, sem
gera verður, eru:
1. að hússtæðið sje þurlent,
2. að gott og mikið neytsluvatn sje fáanlegt.
3. að þægilegt sje að koma fyrir fráræslu,
4. að nokkuð ræktanlegt land sje umhveríis húsið.
Vegna fráræslu og neysluvatns er æskilegt að hússtæði
verði valið nálægt sjálfri Ölfusá. Fráræslan verður þá
ódýrari og unt verður með hægu móti að dæla inn í húsið
vatni úr ánni, ef brunnvatn reyndist af skornum
skamti. Talið er að til starfrækslu búsins þurfi 1000
lítra af góðu neysluvatni á dag, en til kælingar o.
fl., 6—8000 á klst. í þær 3—5 klst., sem vjelar allar
verða i gangi daglega. Telur Diederiksen verkfr. að
vatn Ölfusár muni nógu hreint til þeirra þarfa, verði
það látið renna um sandsíu. Þá er og kaldavermsl
í svonefndum Varmalæk úr 2 lindum, um 6—700 m.
fyrir norðan Þórishóla og mældist í þeim báðum
frekir 7 1. vatns á sek. eða 25000 lítrar á klst. Nægir
þá búinu helmingur lindarinnar, enda kann að vera að
stundum sje minnafhenni en nú mældist. Má einmitt
telja líklegt, að lindarvatn þetta yrði leitt í mjólkurskál-
ann og enginn brunnur gerður. Halli er þó ekki svo
mikill, að vatnið geti runnið sjálfkrafa, nema nokkuð
af leiðinni og verður því síðan að nota dælu.
Það virðist hentugt að nokkuð ræktanlegt land
fylgi hússtæðinu, svo að forstöðumaður þess eigi
kost á að hafa þar einhverjar skepnur, eða jafnvel
búið sjálft, einnig með tilliti til þess, að búið getur
látið af hendi ódýran fóðurbæti, áfirnar.
Nefndin telur hæfilegt að ætla mjólkurbúinu 1,5—
2,0 ha. lands. Samkvæmt fengnum upplýsingum hjá
eigendum Selfoss og Laugardæla, munu þeir gefa