Búnaðarrit - 01.01.1928, Page 55
BtTNAÐARRIT
49
hrekkur til. Kosta þarf kapps um, að vanda með-
feið mjólkurinnar svo, að hún verði fyllilega sam-
kepnisfær við alla þá mjólk, sem berst á Reykja-
víkur-markaðinn.
Vel kæmi það og til álita, hvort eigi væri rjett að
taka upp nýbreytni við rjómasöluna, setja upp áhöld
til að feitijafna (homogenisera) rjómann og selja
hann á flöskum. Með því móli heldur hann sjer
mun betur, sem kunnugt er, og full vissa væri fyrir
því, að hann kæmi ávalt í sama ástandi til neytenda
eins og hann fer frá búinu. Nefndin hefir þó eigi
lagt til að keyptar yrðu slíkar vjelar í upphafi, áður
en reynslan sýnir, hve rjómamarkaðurinn verður
mikill.
Sú nýbreytni verður tekin upp við bú þetta, að
lögð verður mikil áhersla á skyrgerð.
Með því að gera skyr úr undanrennunni, fæst fyrir
hana golt verð, meðan skyrmarkaðurinn hrekkur til.
Er það skoðun nefndarinnar, að skyrneyslu manna
megi auka að miklum mun, ef búinu tekst, sem
engin ástæða er til að efast um, að gera að staðaldri
verulega gott skyr. Regar almenningur veit og venst
því, að þarna fæst 1. flokks skyr allan ársins hring,
er það engum efa undirorpið, að skyrneyslan eykst.
Einn þáttur í framleiðslu búsins verður ostagerð
úr þeim hluta undanrennunnar, sem bændur ekki
taka heim til sín eða ekki verður notuð til skyr-
gerðar.
Með því að lítill markaður er fyrir undanrennuost
og með því að hann geymist mjög illa, þá þykir
rjett að áætla að gerður verði í búinu ostur með
20° o fitumagni í þurefni. Að sjálfsögðu má breyta
til um fitumagn eða framleiða osta með mismunandi
4