Búnaðarrit - 01.01.1928, Page 67
BÚNAÐAB.RIT
61
Bændum utan Flóans skal og gefinn kostur á hlut-
töku. Peir er því vilja sinna, tilkynni á skuldbind-
andi hátt, að þeir æski viðskiftanna, og sje sú beiðni
komin mjólkurbúsformanni í hendur áður en 3 mán-
uðir eru liðnir frá stofnun fjelagsins. Við bændur
utan Flóans skulu viðskifti þá gagnkvæmt bindandi
í 5 ár frá þeim tíma er búið tekur til starfa, en að
þeim tíma liðnum skal þeim gefinn kostur á, að
endurnýja viðskiftasamningana um ákveðið timabil,
og jafnframt að tileinka sjer rjett og skyldur fjelags-
manna á sama hátt og áveitusvæðisbændur, ef það
brýtur ekki í bág við landslög þau, er þá verða
í gildi. Pegar 3 mánuðir eru liðnir frá fjelagsstofnun,
fá bændur utan Flóans því að eins bluttöku í búinu,
að rúm leyfi að dómi fjelagsstjórnar, er semur um
slík viðskifti til skemri eða lengri tíma, eftir því sem
hentast þykir. Verður fjelagsstjórnin að gæta þess, að
viðskifti þeirra, er þannig bætast síðar við, brjóti ekki
í bág við þarfir áveitusvæðismanna.
Viðskiftamenn, utan áveitusvæðis, greiði til mjólk-
urbúsins öll árleg gjöld í rjettu hlutfalli við þátttöku
þeirra bæði að þvi er snertir beinan reksturskosnað,
gjöld vegna fyrningar fasteigna og vjela, varasjóðs-
gjöld og opinber gjöld. Jafnframt greiði þeir árlega
hlutfallslega vexti af stofnkostnaði mjólkurbúsins og
endurbótum og viðaukum þeim, sem ekki verða taldir
til árlegs viðhalds. Innan þeirra takmarka, er lög um
samvinnufjelög setja, renni gjöld þessi síðan til áveitu-
fjelagsins.
4. gr.
Fjelagsmenn geta þeir einir orðið, sem reka kúabú.
Hver sá er vill gerast fjelagsmaður sækir um það
til Ijelagssjórnarinnar og að fengnu samþykki hennar,