Búnaðarrit - 01.01.1928, Page 80
BÚNAÐARUIT
Lungnaormar og landbúnaður.
Eftir Jön Pálsson dýralækni, Reyðarfirði.
íflrlit.
Lungnaormar valda arlega stórkostlega miklu tjóni
lijer á landi, bæði vegna þess, að ar hvert drepst nokk-
uð af sauðfjenaði úr lungnaormaplagu, en einnig eru það
ógrynni af fóðri, sem árlega er notað til þess að fóðra
ormaveikt fje, en kemur ekki að tilætluðum notum
meðan fjeð er með ormana, bæði af því að margt af
fjenu drepst, þrátt. fyrir mikinn tilkostnað og erfiði, en
einnig vegna þess að það fje, sem hefir orma, en lifir
veikina, verður ekki eins afnotad'júgt að haustinu eins
og hraust fje, ær með lungnaorma láta oft iömbunum,
en ef þær halda fóstrinu og koma þvi fram, eru lömbin
að haustinu lýrari en lömb undan hraustum ám.
Töp bændanna eru þvi mjög tilfinnanleg og skifta ár-
lega tugum þúsunda, ef ekki hundruðum þúsunda króna,
bæði beint, og óbeint, jafnvel þóit veikin geti ekki talist
skæð, en það hefir húu venð a Austurlandi siðastliðin
ár og i Noiður- og Vesturlandi, Skagafjaiðar-, Húna-
vatnasýslu og Dalasýslu nú siðastliðinn vetur. Skifta þá
töp bændanna miljonum og er það alvarlegt þjoðarböl,
að ef ekki veiður að gert, má gera rað fyrir að bændur
flosni upp af fjölda jaiða, þar sem þessi veiki er erfiðust
og gengur ar eftir ar.
Það er því siðferðisleg skylda ailra, er unna landbún-
aði þjóðar vorrar að gera alt sem hægt er til þess að
taka sem fyrst fyrir kverkar þessa fjanda sauðfjárins
og bændanna.