Búnaðarrit - 01.01.1928, Page 84
78
btJnaðarrít
Lýsing.
Lungnaormarnir eru þraðormar — sivalningar — þeir
lifa bæði í húsdýrum og viltum dýrum, sama tegundin
getur lifað í mörgum dýrategundum, þannig geta hús-
dýiin smitast af viltum dýrum t. d. hjerum og rádýr-
um. Þær ormategundir, sem lifa í sauðfje og nautgrip-
um hafa þó lang mesta hagfræðilega þýðingu. Lungna-
ormar lifa í þessum dýrategundum: Sauðfje, nautgripum,
geitum, svínum, hrossum, hundum, köttum, hjerum
kanínum, rádýrum og hjörtum.
í sauðfje hfa: Strongylus filaria, S. rufescens (com-
mutatus) S. capillaris. S. paradoxus.
í nautum: S micrurus.
I geitum: S. filaria S. rufescens (commutatus) S.
capillaris.
í svínum: S. paradoxus.
í hrossum: S. micrurus, S. Arnfildi.
í hundum: S. canis brouchialis. S. vasorum canis.
í köttum: S. pusillus.
í hjerum og kanínum: S. commutatus.
í radýrum: S. micrurus, S. crpillarin S. commutatus.
í hjörtum: S. filaria, S. micrurus, S. sagitatus.
Af nöfnurn ormanna getum vjer gert oss grein fyrir
hvernig hinar ýmsu dýrategundir geta smitað hver aðra,
þannig sjáum vjer að S filaria lifir í sauðfje, geitum
og hjörtum, þessar dýrategundir geta því auðveldlega
sýkst hver af annari. S. micrurus lifir bæði í nautgrip-
um og hrossum o. s. frv. Jeg ætla hjer að eins að lýsa
þeim ormategundum sem hfa í sauðfje, þar eð þær teg-
undir valda oss mestu tjóni.
Strongylus filaria karldýiið er 30—80 mm. á lengd,
kvendýrið 50—100 mm., hvítleitir, að gildleika eins ofr
grófur tvinni eða seglgarn.
Strongylus rufescens karldýrið 18—28 mm., kvendýrið'
25—35 mm., harfínn brúnleitur.