Búnaðarrit - 01.01.1928, Page 85
bOnaðarrit
79
Strongylus capillaris, karldýrið, 14 mm., kvendýiið
19 — 23 mm., að gildleika eins og fínn tvinni, glær að
lit. Með öðrum orðum ormarnir eru frá 14 — 100 mm.
á lengd eða alt að flngurhæð, að gildleika hárfinir, alt
að seglgarnsgildleika.
Lifnaðarhættir.
í lungunutu lifa ormarnir, bæði karldýr og kvendýr.
Þó er venjulega nokkuð fleira af kvendýrunum, sem
einnig eru þroskameiri. í lungunum ná þeir fullkomnum
þioska. í hinum fullþroskuðu kvendýrum sjást — i smá-
sjá — eggin í leginu, í eggjunum eru ungarnir —
Eggin leggja mæðurnar i barkann, í lungnapípurnar og
stundum í iungnavefinn, ungarnir skriða síðan úr eggj-
unum, fjeð hóstar þeim upp í kokið og kingir þeim,
ganga þeir síðan aftur af fjenu, með saurnum, í smásjá
má finna ungana í saur úr lungna-ormaveiku fje.
Stundum skríða ungarnir upp úr lungunum og út um
Hefið, valda því kitium í nefinu, þannig, að fjeð „snússar"
eins og það er kallað hjer á Austurlandi. Hve lengi
ýrmlingarnir halda sig í lungunum er órannsakað, vil
jeg því ekkert ákveðið um það segja, þó tel jeg að sá
timi geti verið alt að því 3 mánuðir. Þann tíma sem
ormarnir og yrmlingarnir eru i kindinni diegst hún
smátt og smátt. upp, og ef hún lifir og gengur lengi
með þa verður hún svo horuð og máttfarin, að hún
getur ekki staðið, en liggur og nærist liggjandi, þar til
hún loks veltur út af og deyr. Það er eðii yrmlinganna
a& þeir fara burt úr kindinni, því að öðrum kosti ná
Þeir ekki fullum þroska, siðan lifa þeir um skeið — hve
lengi er órannsakað — utan kindar í jörðinni eða í
gruggugu vatni, sem mjög ófullkomnar verur, en kom-
ast svo loks með fóðrinu, beitinni eða vatninu í kindina,
tar sem þeir na fullkomnu þroskastigi, og að því loknu
heyja þeir. í jörðinni geta ormarnir tímgast liklegast